Nú er ég stödd á Kastrup-flugvelli og er að drekka mjög dýrt kaffi. Hvaða bjöllusauður ákvað að nútímalegar flughafnir væru svona þreytandi staðir og hvernig stendur á því að hérna eru veitingastaðir sem spila stöðuga dúnki-dúnki-tónlist? Alveg er ég viss um að ef haldin yrði atkvæðagreiðsla meðal farþega um hvort þeir kjósi þetta andrúmsloft þá yrði stemningin hérna kolfelld.
En við áttum góða daga á Skáni og í Kaupmannahöfn. Í Malmö hittum við Cillu vinkonu okkar sem býr í Kanada en var að heimsækja vini og fjölskyldu í Svíþjóð. Í Kaupmannahöfn hittum við son og tengdadóttur sem búa á Fredriksberg. Við fórum í góða göngutúra um Nørrebro, Østerbro og Frederiksberg, borðuðum góðan mat og svo kom vorið. Mér skilst að það sé líka komið til Íslands. Ég þarf að skrifa bók og ég held að vorveður henti mjög vel til þeirra skrifta. Svo bíða framkvæmdir hér og þar. Bæði innan húss og utan. Og í annarri ferðatöskunni sem var tékkuð inn er róla en í hinni hengistóll.
P.S. Hér er umfjöllun um Velkomin til Ameríku.

Kolonilotter í ByOasen við Møllegade á Nørrebro |
Kommentarer
Skicka en kommentar