Í fyrra flutti ég nokkra pistla um nýlegar ævisögur í Víðsjá á Rás 1. Einn pistlanna fjallaði um bók um Simone de Beauvoir, konu sem býsna margt hefur verið skrifað um, og ég spurði mig spurningar sem margir spyrja sjálfsagt; vantar okkur fleiri bækur um þetta fólk? Spurningunni svaraði ég í pistlinum, sem má lesa hér.
Í jólagjöf fékk ég bók um aðra konu sem margt hefur verið skrifað um. Reyndar hef ég fremur lítið lesið um hana, líklega bara eina ævisögu sem ég las þegar ég var safnvörður í Listasafni Einars Jónssonar sumarið 1991 (það var skemmtilegt starf og stundum hægt að lesa þegar nýaldatúristarnir létu ekki sjá sig, oft var töluvert af þeim þarna að sækja sér orku og inspírasjón í stytturnar). Sá sem gaf mér bókina hafði upphaflega ætlað að gefa mér nýlega bók um Guðjón Samúelsson, en hún seldist upp fyrir jólin svo þessi ævisaga Sylviu Plath varð fyrir valinu. Þessi bók um Sylviu, verk hennar og fjölskyldusögu er eitthvað töluvert á annað þúsund blaðsíður. Ég er rétt búin með innganginn og fyrstu síðurnar, en mér sýnist þetta vera góð bók eftir höfund sem treður sjálfri sér ekki um of inn í frásögnina og hún hafði aðgang að öllu því sem eftir Sylviu liggur, sendibréfum, dagbókum og fleiru. Ég hlakka til að lesa meira um Otto og Aureliu, foreldrana prússnesk-austurrísku og um líf Sylvíu, skrifandi konu á tímum þegar fyrst og fremst var litið á heimilið sem stað konunnar og húsverk og uppeldi hennar hlutverk.
Kommentarer
Skicka en kommentar