Jólabókaflóðið er brostið á. Ég kíkti í Eymundsson á Skólavörðustíg í gær og sá að það er hellingur af nýjum bókum, þýddum og sömdum á íslensku, á borðunum, flestar þeirra hef ég ekki heyrt minnst á. Kannski fá margar þeirra enga umfjöllun í fjölmiðlum, nema kannski í einkafjölmiðlum höfundanna og þýðendanna, samfélagsmiðlunum. Það eru þó, sem betur fer, alltaf einhverjar bækur sem fá alvöru fjölmiðlaumfjöllun. Í Morgunblaðinu um daginn birtist gagnrýni um nýja bók þar sem þessi setning kemur fyrir: Bókin er flókin að því leyti að gagnrýnandi skilur ekki hvert hún er að fara . Gagnrýnandinn sem skrifar þetta gefur svo bókinni þrjár og hálfa stjörnu. Í vikunni var pistill í sænska blaðinu Expressen eftir Lyru Ekström Lindbäck, sem er rithöfundur, blaðakona og doktor í heimspeki, þar sem því er haldið fram að bókmenntirnar þoli ekki lengur gagnrýni og að fólk þoli ekki að lesa eða hlusta á alvöru gagnrýni um bækur. Greinin er örugglega svar við því að nýlega ákvað ritstjórn Aftonbl...

Kommentarer
Skicka en kommentar