Þegar þessar línur eru skrifaðar er ég stödd í húsi í jaðri Reykjavíkur. Húsið er byggt 1968 sem sumarbústaður og þess vegna ekki einangrað með það í huga að í því sé dvalið þegar hitinn utanhúss nálgast tíu mínusgráður. Þegar ég kom hingað var hitinn inni við frostmark og frosið í blöndunartækjunum í eldhúsinu. Eftir þriggja tíma dvöl og kyndingu með rafmagnsofnum og kamínu er hitastigið orðið bærilegt, en rétt áðan var ég samt að prjóna vettlinga með ullarhúfu á höfðinu.
Fyrir nokkrum árum keypti ég þrjú hnausþykk, ofin ullarveggteppi á fimm hundruð krónur stykkið í nytjamarkaði. Eitt þeirra fór strax upp á vegg en tvö lentu í kistli, eins og gerist stundum með hluti sem fólki áskotnast og það kann að meta, en veit ekki hvað það á að gera við.
Áðan blasti lausnin skyndilega við; teppin eru fullkomin fyrir gluggana með örþunna, einfalda glerinu. Þau eru falleg og einangra lygilega vel.
Vá, já, sjúklega falleg. Ég hugsa til þín í fallega litla húsinu <3 Gleðilegt ár, mín kæra (eða æra eins og fyrst kom út úr lyklaborðinu).
SvaraRaderaTakk, sömuleiðis mín kæra. Sjáumst bráðum, ég flýg af stað um leið og veirustaðan verður bærileg.
SvaraRadera