Vinur okkar er prófessor í skipulagsfræðum í háskóla í Kanada. Hann kom í heimsókn og varð undrandi og hló vandræðalega þegar hann spurði hver væri meiningin með öllum lúpínubreiðunum í borginni og nærsveitum og hvers vegna þetta væri ekki slegið. Svo furðaði hann sig á hraðbrautum og umferðaslaufum í þessari smáborg.
Í gær, á þjóðhátíðardaginn, var mjög mikil rigning og haglél á Hólmsheiði. Það var vissulega notalegt að vera inni í nýja hengistólnum að lesa bestu bók sem ég hef lengi lesið og heyra úrkomuna bylja á þakinu á gamla kofanum, en við ákváðum samt að fara niður í bæ og fórum á Ban Thai þar sem við hittum vini okkar sem voru að kaupa sér rafmagnsbíl. Þeim finnst svo gaman að keyra bílinn að þau voru smá leið yfir að við vildum ekki láta skutla okkur þessa 300 metra sem eru frá Ban Thai að heimilinu.
Í dag fórum við í þrjár húsgagnaverslanir og keyptum rúm og sófa. Bráðum verður gestaherbergið í kjallaranum tilbúið fyrir gestina sem koma rétt fyrir mánaðamótin. Mér finnst merkilegt hvað það er mikið af húsgagnaverslunum í Reykjavík.

Hengistóll og haglél |
Kommentarer
Skicka en kommentar