Fortsätt till huvudinnehåll

Skrópasýki á bænadegi Dana

Mig langar smá að skrópa í vinnunni í dag og fara upp í sumarhúsið mitt (þangað er 15 mínútna akstur) og skrúfa frá krana og athuga hvort gamla þvottavélin virkar. Það sprungu nefnilega leiðslur og blöndunartæki í vetur (og vatn flæddi út á gólf) en nú er búið að laga pípurnar og aftur komið rennandi vatn í kranana. Það er samt ýmislegt sem þarf að laga, bæta og mála í sumarhúsinu sem telst líklega kofi miðað við íslenska sumarbústaði almennt. Mér skilst samt að svona A-hús séu mikið í tísku hjá retró-áhugafólki úti í heimi, ég fékk meira að segja póst í fyrra frá manni í útlöndum sem sá mynd af sumarhúsinu mínu á Instagram og bað mig að gefa sér upp málin á því, hann var að fara að byggja sér svona hús og var að velta fyrir sér hvað hann ætti að hafa stóran gólfflöt. Þetta þýðir sennilega að A-hús komast í tísku á Íslandi eftir tuttugu ár. En þá verður kannski búið að rífa þau flest. Svo þarf að hella úr safnhaugstunnunni og stinga upp beð og sá fræjum, já og stinga upp fullt af furuplöntum sem eru búnar að sá sér um allan móa. Ef ykkur langar í lítil furutré þá get ég reddað þeim. Kannski ætti ég bara að taka mér frí, það er frídagur í Danmörku í dag. Ég þarf líka að vinna á morgun, þá er ég búin að lofa að mæta í bókasafn í Garðabæ og lesa úr tveimur bókum. Annars ætti ég að skrifa nokkrar síður í rómaninum sem ég er að reyna að skrifa. Vandamálið með hann er að hann styttist í stað þess að lengjast. Um tíma var ég búin með fimmtán síður en síðan þurrkaði ég megnið af þeim út. Karl Ove Knausgård gæfi nú ekki mikið fyrir afköst mín við rómanskrifin, hann skrifaði lágmark tíu síður á dag þegar hann var að vinna að sex bóka ritröðinni um sjálfan sig.

Þetta er sumarhúsið í uppsveitum Reykjavíkur
Svona gróðurhús í viktoríönskum stíl á ég ekki en mig langar í það.

Kommentarer

Skicka en kommentar

Populära inlägg i den här bloggen

Kona sem dó af völdum kakkalakkapúlvers

Undanfarnar vikur hafa Halldór Guðmundsson og Þorgerður E Sigurðardóttir verið með mjög áhugaverða útvarpsþætti á RÚV um Íslendinga í Kaupmannahöfn. Síðasti þátturinn verður á dagskrá næsta laugardag og ég hlakka til að hlusta á hann. Í þáttunum, sem heita Skáld og skrælingjar , hefur Halldór meðal annars minnst á íslenska karla sem sátu hver yfir öðrum á knæpum í grennd við Kóngsins nýjatorg og uppnefndu Dani, en líka hefur verið minnst á nokkrar konur. Ég hef sjálf óseðjandi áhuga á íslenskum konum sem voru í Kaupmannahöfn á síðustu öld og er einmitt núna stödd í borginni og búin að lesa ýmis skjöl á Ríkisskjalasafni Dana og fletta upp í Borgarskjalasafninu. Ég hef ekki fundið nákvæmlega það sem ég er beinlínis að leita að og sem tengist íslenskri konu sem bjó í Kaupmannahöfn mikinn meirihluta ævinnar (hér eru útvarpsþættirnir um hana ), en ég hlýt samt að finna þetta á endanum, nú bíða mín tvær útkrotaðar bækur í Svarta demantinum. Ekki er ég sagnfræðingur og ekki geng ég mjög skip...

Félagsbústaðir og vélanám

Það eru nokkrar rásir sem spilast í höfðinu á mér á hverjum tíma. Það er svo sem ekkert beinlínis að því (ég hélt einu sinni að allt fólk væri svona en nú skilst mér að það séu tekin lyf við þessu) en alla vega ákvað ég að skrifa niður eitthvað af því sem hefur bergmálað innra með mér í morgun. Byrjum á einni spurningu: Hvenær tók Vanilla Black, sem er útum allt í flösku sem pinnar standa uppúr, við af Ariel Ultra sem íslenska ríkislyktin? Ég hef oft rætt um Norðmanninn sem sagði mér að hann þekkti Íslendinga í strætó í Osló á þvottaefnislyktinni, en núna er það þessi Vanilla Black-lykt sem hefur yfirtekið þjóðfélagið. Mér persónulega finnst hún betri en þvottaefnislykt (ég nota bara svansmerkt og lyktarlaust þvottaefni) og er alveg í vanillu-teyminu, en þetta er samt kannski að verða gott með þessa lykt? Á meðan lesendur velta þessu fyrir sér ætla ég að snúa mér að næsta máli: Það bjó svokallaður svikahrappur í íbúð Félagsbústaða í um það bil áratug og át þar lyf út á resept látinnar ...

Launbarnið - framhald

Í gær skrifaði ég að ég hefði fundið sönnun þess í skrá Mæðrahjálpar Kaupmannahafnar að Elín Elísabet Jónsdóttir hefði eignast son með Jóhanni Jónssyni. Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur, sem er að safna efni í bók um Jóhann, er sá sem hafði samband við mig um hvort ég hefði rekist á nafn Elínar og það var svo skemmtileg tilviljun að það hafði ég gert alveg óvænt. Eftir að hafa verið í sambandi við Guðmund og hann sent mér eitt heimilisfang og ég síðan fundið eitthvað um ferðir Elínar í Kaupmannahöfn sagði ég honum að skrár yfir fæðingar á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn væru á vef danska Ríkisskjalasafnsins en að það væri þolinmæðisverk að stauta sig í gegnum þær. Eftir að ég sendi honum póstinn datt mér samt í hug að taka smástund í að lesa nöfn fæðandi kvenna í Protokol over ugifte fødende (hemmeligfødende) á Ríkisspítalanum. Árið sem nafn Elínar er í bók Mæðrahjálparinn er 1917 svo ég gerði ráð fyrir að barnið hefði fæðst snemma það ár, hún mun hafa komið til Danmerkur 1916. Ég ...

Gömul launungamál

Ég er stödd í Kaupmannahöfn og undir lok liðinnar viku var ég að fletta skrám frá Mæðrahjálp borgarinnar frá því á öðrum áratug síðustu aldar. Þar rakst ég á örfá nöfn íslenskra kvenna, og reyndar karla líka, en aðeins tvö sem ég lagði á minnið. Mæðrahjálpin hefur í rúm hundrað ár rekið hjálparstarf í Kaupmannahöfn. Áður störfuðu þar tvö félagasamtök sem aðstoðuðu einstæðar, barnshafandi konur og konur sem höfðu átt börn utan hjónabands, sem var síðan steypt saman í Mæðrahjálpina. Hjálpin fólst meðal annars í að hafa uppi á fjarverandi feðrum,  koma börnum til ættleiðingar og að aðstoða við framfærslu. Nöfnin sem vöktu athygli mína voru Elín Elísabet Jónsdóttir og Jóhann Jónsson. Seint á föstudagskvöldið sendi ég Kristínu Svövu Tómasdóttur skilaboð, mig rámaði í þessa færslu sem hún skrifaði á sínum tíma um bókina Angantý. Ég sagði Kristínu að ég hefði ekki lesið bókina en að ég hefði hlustað á útvarpsþætti um Elínu, sem Sóley Stefánsdóttir, afkomandi hennar (sem einnig var nágrann...

Karladýrkun

Ein birtingarmynd karlasamfélagsins æpti á mig úr hillu með óskálduðum bókum sem ég gekk framhjá á Kastrupflugvelli í gær (það stendur non-fiction fyrir ofan hilluna). Þarna er nú aldeilis enginn skortur á bókum um og eftir karlmenn þar sem kápumyndin er af aðalkarlinum. Svo lúrir þarna Britney Spears innan um karlana, en hún er ber að ofan. Og svipuð sjón er auðvitað svo algeng að fæst fólk sér nokkuð athugavert við þetta. Þegar athygli er vakin á þessu er gjarna sagt að þetta sé alveg örugglega bara einhver tilviljun.   

Aðlögun og ættfræði og fólkið sem vill kannski skrifa bækur fremur en lesa þær

Það er mánudagur og rétt komið hádegi. Efsta atriðinu á listanum yfir það sem ég ætlaði að gera í dag er samt þegar lokið. Ég er búin að senda inn umsókn um listamannalaun fyrir árið 2025. Eiríkur Örn Norðdahl gerði listamannalaunaumsóknarskrifum skil um daginn og talar (í léttum tóni samt) um þessa h*$#*s ritlaunaumsókn . Hann vill fá fastráðningu og ég lái honum það svo sem ekki, það er ákveðin áskorun að sækja árlega um laun fyrir vinnu næsta árs og lifa síðan í nokkurra mánaða óvissu um hvort þau fáist. Það er hins vegar fjarri mér að kvarta, í fyrsta lagi er ég mjög þakklát fyrir hvern einasta mánuð sem ég hef fengið listamannalaun fyrir að sinna skrifum (ég fékk jákvætt svar við launaumsókn í fyrsta skipti þegar ég var að nálgast fimmtugt og var búin að gefa út þó nokkrar frumsamdar bækur og þýðingar) og svo finnst mér ekkert leiðinlegt að skrifa umsóknina. Þá gefst færi á að rifja upp verkefni ársins sem er að líða (það þarf auðvitað að uppfæra ferilsskrána) og setja saman text...

Þýðingar

Ekki hef ég enn lesið bók eftir nýjan Nóbelsverðlaunahafa í bókmenntum en ég hef heyrt umræður um bækurnar hennar, bæði þegar Grænmetisætan kom út á íslensku og eftir að tilkynnt var að Han Kang fengi verðlaunin. Í gær birtist lesendabréf í sænska blaðinu DN þar sem kona sem heitir Anne-Marie Morberg er að býsnast yfir því hvað þýðendur fái litla athygli í stóra bókmenntasamhenginu. Þeirra tungumálaþekking og málkennd byggir brýr yfir landamæri á milli tungumála og þegar Han Kang er hyllt fyrir ljóðrænan prósa á Norðurlöndum þá er líka verið að hrósa þýðendunum sem koma textanum til skila, það ætti alla vega að vera þannig, segir Anne-Marie sem skrifar lesendabréfið. Hún segist hins vegar hafa þurft að hafa fyrir því að fletta upp nafni þess sem hefur þýtt Han Kang á sænsku því á það hefur varla verið minnst í sænskum fjölmiðlum. Eftir að þetta lesendabréf birtist hefur fleira fólk stigið fram og tekið undir, meira að segja hefur verið bent á það að þýðandi eigi höfundarrétt á sænskum...

Orkudrykkir og sveppir

Í gær sagði ég á skrifstofunni, sem ég deili með nokkrum konum sem allar eru snillingar, að X-kynslóðin væri búin að eyðileggja svo margt. Mér var auðvitað svarað með "ókei boomer" og "farðu nú ekki ofan í þessa gröf, Þórdís" en mér fannst ég mega segja þetta því ég skilgreini sjálfa mig sem X-kynslóð (svona þannig séð, ég skilgreini mig svo sem ekkert sem einhverja kynslóð). Það sem ég var að vísa í var að það er búið að loka flestum gamaldags kaffihúsum sem seldu venjulegt kaffi með ábót og heiðarlegt ristað brauð með osti, í staðinn drekk ég súrt kaffi sem kostar 890 krónur bollinn og borða súrdeigsbrauð með avókadó sem ég veit ekki hvar vex. Ég sakna Kaffi Roma á Rauðarárstíg þar sem ófrítt fólk sat og drakk kaffi með kennarastofubragði og las Séð og heyrt . Ég reiknaði út að það kostar mig um 300 þúsund krónur á ári að drekka einn svona dýran kaffibolla á dag. Þetta fór ég að spá í vegna þess að maður í hlaðvarpsþættinum Leitin að peningunum segir að það kosti...

Hórur bókmenntanna

Fyrir nokkrum dögum sagði ég frá því að Camilla Läckberg sæti undir ámæli um að vera ekki höfundur bóka sinna heldur hefði hún ráðið annan höfund í að skrifa að minnsta kosti tvær. Nú hafa umræðurnar um þetta undið upp á sig og höfundapar eitt, Leif og Caroline Grimwalker, tjáði sig í vikunni í sænska ríkisútvarpinu þar sem þau segjast eiga bækur frá öllum stóru forlögunum á metsölulistum, nema hvað bækurnar eru ekki sagðar eftir þau heldur aðra fræga höfunda. Aðspurð segja þau að ekkert sé athugavert við þetta, sumir höfundar anni bara ekki eftirspurn, allir geti ekki verið jafn handfljótir og þau, sem skrifa fimmtán bækur á ári hvort, eða þrjátíu samtals.  Parið Leffe og Caroline Grimwalker er þekkt hjá áhugamönnum um sænskar afþreyingarbókmenntir. Þau gefa út gríðarlegan fjölda verka og skrifa það allt á skipulagshæfni sína og vinnusemi, nú og löngun til að þéna mikla peninga. Þau segjast vera bókmenntaverksmiðja og fyrir einhverju síðan las ég viðtal við þau þar sem þau sögðu...

Mauradráp á Sikiley

Í gær sat ég á sólbekk við sundlaug á strandhóteli á Sikiley og horfði á maura vinna í því að flytja líkið af stórri, dauðri bjöllu. Fyrst reyndu nokkrir maurar að lyfta undir framendann á henni, eins og þeir hefðu hugsað sér að rúlla henni, það gekk ekki og hópur dreif að, maurarnir röðuðu sér í kringum bjölluna og bjuggu sig undir að lyfta henni í sameiningu. Ég fylgdist með þessu í nokkrar mínútur en skyndilega stóð upp heimilisfaðir á næsta sólbekk (hann var með stóra silfurkeðju um hálsinn og nöfn barnanna sinna flúruð á sig) og þreif bjölluna upp af sundlaugarbakkanum og henti henni út í runna. Svo stappaði hann ofan á maurahópnum með flip-flop töfflunni sinni. Nú situr þessi maður á næsta borði við mig í morgunverðarsal hótelsins og borðar kökur. Það er ekkert ósætt brauð, nema örþunnar fransbrauðsneiðar, í boði hérna en kökuhlaðborðið er rosalegt. Allskonar tertur og flórsykurstráð sætabrauð í röðum á borðinu og nettar ítalskar konur raða í sig í kringum mig. Mauramorðinginn ...