Fortsätt till huvudinnehåll

Inlägg

Visar inlägg från december, 2023

Óþolandi karlmaður

Um daginn skrifaði sænskur blaðamaður og rithöfundur tvær greinar í dagblaðið Expressen um hvað það hefur reynst honum erfitt í lífinu að fólki líkar ekki við hann. Maðurinn heitir Jens Liljestrand og hafi hann þótt ósympatískur allt sitt líf þá er því að minnsta kosti lokið núna því tvær greinar um eigin vanlíðan vegna þess hvað maður er óvinsæll hafa pottþétt breytt þessu. Það er löngu búið að rannsaka það að opinská viðtöl og játningar gera fólk vinsælt, sérstaklega ef fólkið er karlmenn. Þá eru þeir búnir að opna sig og sýna einlægni og eru þar með skilgreindir sem krútt. En sem sagt, Jens Liljestrand áttaði sig snemma á því að hann væri óvinsæll. Fólki fannst hann með óþægilega nærveru, montinn og ókurteis. Hann hélt að þetta væri eitthvað spes og sérstakt í eigin fari, en eftir að hann skrifaði greinarnar tvær þá lét fullt af fólki í sér heyra og lýsti samskonar upplifunum. Svo hafði blaðakona DN líka samband við Jens, hún las greinarnar hans og tók við hann viðtal. Talandi um ke