Ég byrjaði á að lesa það sem ég gat auðveldlega fundið um Pétur Brynjólfsson (1881-1930). Hann var þekktur ljósmyndari á sinni tíð, frá 1907 konunglegur hirðljósmyndari og hann byggði fallega húsið á móti Þjóðleikhúsinu, þar sem lengi var ljósmyndastofa. Ég skoðaði líka fullt af myndum eftir Pétur sem eru á Sarpur.is, í þeirri von að finna manninn á minni mynd á meðal þeirra. Svo fékk ég mér göngutúr niður á Hverfisgötu og keypti endurminningar Péturs, sonar Péturs Brynjólfssonar, í fornbókabúðinni Bókinni. Hana las ég samdægurs, bókin heitir Einn í ólgusjó og er skráð af Sveini Sæmundssyni.
Ég ætla ekki að rekja rannsóknarvinnuna í löngu máli en niðurstaðan er sú að önnur hópmyndin á veggnum sé útskriftarárgangur 1899 úr Menntaskólanum í Reykjavík. Hin hópmyndin er mjög sennilega tekin í garði Regensen eða Garðs, í Store Kannikestræde 2 í Kaupmannahöfn. Inga Lára sér byrjendabrag á myndinni af unga manninum með pípuna og telur Pétur hafa tekið hana þegar hann var í læri hjá P. Schaumburg í Nørregade 23 í Kaupmannahöfn 1901-1902. Úr árgangi 1899 í MR urðu fjórir læknar og þrír þeirra menntuðu sig við Hafnarháskóla. Inga Lára skoðaði þá og niðurstaðan var að þessi mynd er líklega af Kristni Björnssyni (1879-1939) sem var læknir í Kaupmannahöfn, en líka á St. Thomas og Haítí og lést raunar um borð í skipi á leið frá Ceylon. Myndin er að öllum líkindum tekin í herbergi Kristins á Garði, en þar bjó hann þegar hann stundaði læknanámið í Höfn. Krúsin í hillunni er með merki danska skipafélagsins DFDS. Myndir af Íslendingi í herbergi sínu á Regensen eru teljandi á fingrum annarrar handar svo þessi er mikið fágæti.
Hér að ofan er stutta útgáfan af þessari sögu. Ég er búin að rekja ættir Kristins Björnssonar og kortleggja eitthvað af ferðum hans um Kaupmannahöfn og Vestur-Indíur, en það er önnur og lengri saga sem ég tek gjarna munnlega ef ég hitti fólk sem hefur áhuga.
![]() |
Kristinn Björnsson, læknir á Haítí með Björn son sinn sem lést eins árs gamall árið 1911 |
Kommentarer
Skicka en kommentar