Fortsätt till huvudinnehåll

Launbarnið - framhald

Í gær skrifaði ég að ég hefði fundið sönnun þess í skrá Mæðrahjálpar Kaupmannahafnar að Elín Elísabet Jónsdóttir hefði eignast son með Jóhanni Jónssyni. Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur, sem er að safna efni í bók um Jóhann, er sá sem hafði samband við mig um hvort ég hefði rekist á nafn Elínar og það var svo skemmtileg tilviljun að það hafði ég gert alveg óvænt. Eftir að hafa verið í sambandi við Guðmund og hann sent mér eitt heimilisfang og ég síðan fundið eitthvað um ferðir Elínar í Kaupmannahöfn sagði ég honum að skrár yfir fæðingar á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn væru á vef danska Ríkisskjalasafnsins en að það væri þolinmæðisverk að stauta sig í gegnum þær. Eftir að ég sendi honum póstinn datt mér samt í hug að taka smástund í að lesa nöfn fæðandi kvenna í Protokol over ugifte fødende (hemmeligfødende) á Ríkisspítalanum.

Árið sem nafn Elínar er í bók Mæðrahjálparinn er 1917 svo ég gerði ráð fyrir að barnið hefði fæðst snemma það ár, hún mun hafa komið til Danmerkur 1916. Ég byrjaði að lesa, hóflega vongóð, og las hvert einasta nafn konu sem fæddi á laun frá desember 1916. Þeim lestri lauk á því að ég fann skráð að Elín Elísabet Jónsdóttir Thorarensen, fráskilin vinnukona, hefði fætt son þann 24. maí 1917 og að við fæðinguna hafi hún verið búsett hjá Thoroddsen á Raadhusgade 21 í Charlottenlund.


Næsta skref var þá að finna kirkjubók. Ríkisspítalinn var sérstök sókn og þar voru fæðingar skráðar. Ég vissi að sú bók væri öll skönnuð því ég hef áður kíkt í hana og það tók mig ekki langa stund að finna þetta. Í bókinni stendur að Knud Jónsson Østergaard sonur Elínar Elísabetar Thorarensen f. Jónsdóttur hafi verið skírður í kirkjunni í Lyngby 26. júlí 1919 og skírnarvottar hafi verið gårdsejer Peder Christiansen Østergaard og kona hans Christine Sørine.



Næsta hænufet var að finna kirkjubók frá Lyngby og hún var á sínum stað á internetinu (guð blessi Dani fyrir að vera duglegir að skanna skjöl). Þar kemur fram að Knud Østergaard, sonur ógiftrar Elínar Jónsdóttur hafi verið skírður í Lyngby kirkju 26. júlí 1919 og að ættleiðingarforeldrar séu landeigandinn Peder Christiansen Østergaard og kona hans Christine Sørine og að þau séu búsett í Hissinge. Í kirkjubókinni koma líka fram nöfn skírnarvotta en meðal þeirra er forstöðukona barnaheimilis í Lyngby. Þið getið ímyndað ykkur að ég var himinlifandi með að vera komin með þetta allt, mér fannst ég alveg vera að standa undir framhaldsskúbbi við fréttina frá í gær. Ég ákvað samt, þó að komið væri vel fram yfir miðnætti, að hætta ekki strax og reyna að finna meira um Knud. Ég byrjaði auðvitað á því að slá nafnið Knud Østergaard inn í leitarvél og samstundis birtist danskur pólitíkus.  Þetta gat ekki verið minn Knútur því þessi var fæddur árið 1922. Þegar ég renndi yfir æviatriði þessa Knuds, sem var menntaður í hernum, handtekinn af Gestapo, ráðherra í tveimur ríkisstjórnum og almennt mikill spaði sem meira að segja skrifaði ævisögu sína, sá ég að foreldrar hans voru engin önnur en ættleiðingarforeldrar sonar Elínar og Jóhanns. Þar með dró ég þá ályktun að hann hefði verið nefndur í höfuðið á syni þeirra og að sá drengur hefði sennilega ekki orðið langlífur.

Þar sem Sherlock Holmes sefur aldrei þá klóraði ég mér í hausnum og hélt ótrauð áfram. Hissinge, stóð í kirkjubókinni frá Lyngby og hvaða staður er það? Jú, hann er á Jótlandi og ekki langt frá Álaborg. Ég fann kirkjubók frá Vestra Hissinge á vef Ríkisskjalasafnsins og skrá yfir látna á árunum uppúr 1920. Sem betur fer er þetta ekki svimandi stór sókn. Ég byrjaði að fletta kirkjubókinni aftur á bak frá seinni hluta ársins 1922 og komst að því að Knútur litli hefði dáið 20. maí það ár og verið jarðsettur í Hissinge 26. maí.



Bróðirinn, sem fæddist örfáum mánuðum á undan Knud eldri, hefur verið látinn heita í höfuðið á honum. Sagan um barn Elínar Elísabetar Jónsdóttur Thorarensen og Jóhanns Jónssonar var sem sagt komin. Ég hætti samt ekki alveg strax, eins og kom fram í færslu sem ég skrifaði hér fyrir nokkrum dögum eru Danir búnir að skanna inn mörg dánarvottorð og einhvern tíma þegar allt heiðarlegt fólk var steinsofnað fann ég dánarvottorð Knuds litla Østergaard og þar stendur (á latínu) að hann hafi látist úr lungnaberklum.

Kommentarer

  1. Þetta er nokkuð athyglisvert. Elín Elísabet Jónsdóttir er einmitt langamma mín og pabbi, Lárus, ólst upp hjá henni, og þær tvíburasystur, Herdís og Ólína Andrésdætur voru á heimilinu um það leyti sem pabbi var að alast upp, skilst mér, en Herdís er móðir Elínar Elísabetar.

    SvaraRadera
    Svar
    1. Ég er að skrifa bók um Jóhann Jónsson. Leita að ljósmyndum af Elínu og fjölskyldu hennar. Geturðu aðstoðað eða bent á einhvern sem getur það?

      Radera
    2. Blessaður, Guðmundur, ætti að geta kannað málið.

      Radera

Skicka en kommentar

Populära inlägg i den här bloggen

Guðný Eyjólfsdóttir - sjáandinn á Vesturbrú

Þessar vikunar er ég umsjónarkona þátta sem eru á laugardögum á Rás1. Þeir fjalla um ævi Guðnýjar Eyjólfsdóttir Vestfjörð sem fæddist á köldu vori árið 1888 og ólst upp í torfkofa í Nauthólsvík. Systir hennar, Jósefína, er mun þekktari á Íslandi en Guðný, en hún var spákona á Grímsstaðaholtinu. Upp úr tvítugu sigldi Guðný til Kaupmannahafnar þar sem hún vann láglaunastörf, varð einstæð móðir, komst í kast við lögin og gerðist spákona og heilari yfirstéttar Kaupmannahafnarborgar. Í þáttunum segir frá ýmsu sem dreif á daga Guðnýjar, en hún er fræg í tveimur jaðarhópum í Danmörku, annars vegar meðal spíritista og hins vegar áhugafólks um gömul morðmál. Hér er fyrsti þátturinn um sjáandann á Vesturbrú. Uppfært: Nú eru komnir fjórir þættir og þeir eru hér:  https://www.ruv.is/utvarp/spila/sjaandinn-a-vesturbru/33053/9r6v6k   Guðný Eyjólfsdóttir 1905 Jósefína Eyjólfsdóttir 1916

Karladýrkun

Ein birtingarmynd karlasamfélagsins æpti á mig úr hillu með óskálduðum bókum sem ég gekk framhjá á Kastrupflugvelli í gær (það stendur non-fiction fyrir ofan hilluna). Þarna er nú aldeilis enginn skortur á bókum um og eftir karlmenn þar sem kápumyndin er af aðalkarlinum. Svo lúrir þarna Britney Spears innan um karlana, en hún er ber að ofan. Og svipuð sjón er auðvitað svo algeng að fæst fólk sér nokkuð athugavert við þetta. Þegar athygli er vakin á þessu er gjarna sagt að þetta sé alveg örugglega bara einhver tilviljun.   

Dylanmennirnir

Bob Dylan er nýorðinn áttræður. Eins og var fyrirsjáanlegt spruttu Dylanmennirnir fram eins og grápöddur undan steinum og fögnuðu í einkamiðlum og á opinberum vettvangi. Fréttatími RÚV í gær fagnaði líka afmælinu með veglegri umfjöllun og einn menningarblaðamaður sagði í yfirskrift blaðagreinar að afmælinu fögnuðu allir góðir menn. Í morgun minntist vinkona mín á tíu ára gamla sænska grein, sem birtist í tilefni sjötugsafmælis nóbelsverðlaunahafans í nöldurkenndu rími (textinn við Positively 4th street hlýtur að vera eitt magnaðasta nöldur bókmenntasögunnar). Greinin  Män som missbrukar Dylan , er eftir Hönnu Fahl og þar fjallar hún um Dylanmennina, en Hanna kveðst hafa hitt margan Dylanmanninn í lífi sínu. Nánasti vinur Hönnu, sagnfræðingurinn og skjalavörðurinn Fredrik Egefur, er Dylanmaður (hann er samt kannski fyrrverandi Dylanmaður núna), en Dylanmenn eru þeir sem vímast gjarna allir upp þegar Dylan berst í tal, þeir geta verið á öllum aldri og með ólíkar pólitískar skoðanir ...

Reynsluheimar lesenda

  Í gær hélt ég útgáfuboð í lokaðri bókabúð sem hafði orðið fyrir tölvuárás og verið skellt í lás. Það mættu samt margir og ég gat farið glöð að sofa í gærkvöldi. Í boðinu var ég spurð hvort ég væri ekki komin í frí. Það fannst mér skemmtilegt því að þó að mér finnist ég eiginlega ekki beinlínis vera í vinnu þá finnst mér ég aldrei eiga frí. Vegna þessarar spurningar ákvað ég samt að taka mér frí í dag frá því að skrifa útvarpsþátta- og sjónvarpsþáttahandrit, sem eru helstu verkefni mín þessa dagana. Ég get ekki afsakað mig með því að þykjast vera upptekin við kynningar á nýjum bókum mínum, þýðingu og smásagnasafni, ég er bókuð á tvo upplestra og alls ekki neitt annað. Þetta er aldeilis eitthvað annað en Eiríkur Örn Norðdahl sem þýtur umhverfis landið með posa og bókakassa og kynnir og selur nýju bókina sína og segist vera til í að mæta í viðtöl í næstu viku. Ég er auðvitað bara miklu latari en Eiríkur og svo er mér svakalega illa við að aka eftir þjóðvegum Íslands að vetrarlagi....

Haustið og froskarnir

Það er næstum liðið ár síðan ég skrifaði síðast á þessa síðu. Á því ári hefur margt gerst. Ég ætla ekki að ræða það neitt frekar hér, datt bara í hug að gera það að haustheiti að endurlífga bloggsíðuna og því þurfti ég að prófa hvort ég kæmist enn hér inn. Það er ýmislegt á döfinni eins og gengur á haustin. Hvað mig varðar snýr það að bókum og fjölmiðlaverkefnum, en nýjasta trendið í örvandi efnum ku hins vegar vera að reykja froska. Það finnst mér vissulega undarlegt áhugamál.  Í Dagens Nyheter í dag er sagt frá því að fólk sem fékk ADHD-greiningu sem börn sé nú að fara í aðra greiningu sem losar það við ADHD-díagnósuna. Kannski er því batnað eða að það var ranggreint með ADHD. Þetta gerir fólk m.a. vegna þess að greiningin hamlar því, t.d. getur það aftrað því að það komist í lögreglunám. Með mér blundar umtalsverður áhugi á menningarbundnum sjúkdómsgreiningum (það kom til dæmis fram hér ), en í þetta skiptið er ég ekki sérstaklega að spá í ADHD-greiningar, heldur er ég að hugsa ...

Dánarstaður menningarmanns

Dr. Priemes Vej 1 árið 1947 Einu sinni var nítján ára stúlka sem hét Eleanor Christie. Hún bjó með móður sinni, ekkju eftir lögmann, í Bolfracks Cottage, nálægt Aberfeldy í miðjum skosku hálöndunum. Eleanor hafði gengið í einkaskóla á heimaslóðum og heimavistarskóla í York, hún var drátthög og áhugasöm um listir og málaði blómamyndir. Hún átti gamla tónelska frænku sem bjó í Wales, frænkan hét Helen Powell. Stundum kom vinur Helen í heimsókn til hennar og dvaldi hjá henni í Wales. Þetta var miðaldra músíkant sem ættaður var frá Íslandi, en hann hafði hátt í tvo áratugi búið í Edinborg og kompónerað tónlist og stundað píanóleik og kennslu. Eitt sinn þegar píanóleikarinn heimsótti gömlu vinkonu sína rak hann augun í mynd af stúlku sem honum þótti sjarmerandi og spurðist fyrir um hana. Helen sagði honum að þetta væri Eleanor frænka hennar sem byggi í Skotlandi. Manninum leist svo vel á stúlkuna að hann bað um að hann yrði kynntur fyrir mömmu hennar. Gömlu frænkunni fannst það sjálfsagt má...

Kveðjubréf látinnar móður (eða sjálfsvíg í gulli slegnu baðherbergi)

Ég hef mjög gaman af sögum um fjölskylduleyndarmál. Allskonar safaríkum og leyndardómsfullum sögum sem Íslendingabók og minningargreinar afhjúpa ekki, því fólki er svo umhugað að leyndarmálin komi ekki upp á yfirborðið. Það er oft ekki fyrr en í þriðju kynslóð, þegar þeir sem málið varðar eru komnir í gröfina, að afkomendur fara að leita sér upplýsinga eða kveikja á perunni, að flettist ofan af sögunum. Svona leyndarmál eru mun algengari en margt fólk heldur, það eru mjög margar manneskjur sem eiga sér dulafulla fortíð, eru narsissísk flögð undir fögru skinni eða hafa eitthvað magnað að dylja. Um síðustu helgi skemmti ég mér yfir svakalegri fjölskyldusögu í sex þáttum sem er á vef Danmarks radio og er vinsælasta hlaðvarpssería Dana um þessar mundir. Þættirnir heita Mors afskedsbrev . Adrian Lloyd Hughes er tæplega sextugur, vel þekktur og snobbaður, danskur fjölmiðlamaður sem gerði þetta vinsæla hlaðvarp. Þar fjallar hann um mömmu sína, Jette Dreyer Hughes, og hennar fjölskyldu og það...

Síðdegi flísaleggjarans

Það er eitthvað mjög áhugavert við að leggja flísar. Púsl með tilgang, verk sem er ekki beinlínis mjög auðvelt, en samt ekkert sérlega flókið og getur gengið býsna hratt. Það getur samt alveg tekið á taugarnar. Nú erum við að leggja lokahönd á flísagólf, annað kvöld mun ég fúga og í lok vikunnar verður glænýtt gólf á einu herbergi í kjallaranum. Á meðan ég lagði síðustu flísarnar áðan fór ég að hugsa um bók eftir höfund sem ég hef miklar mætur á. Það er maður sem skrifaði texta sem ég sogast oft inn í því hann er svo óskaplega tær og þægilegur, tilgerðarlaus og innihaldsríkur. Bókin sem ég hugsaði um heitir En kakelsättares eftermiddag eða Síðdegi flísalagningamanns og höfundurinn heitir Lars Gustafsson. Hann var meðal annars prófessor í Austin í Texas en  ættaður frá Västerås og gamall skólafélagi P. O. Enqvist. Lars Gustafsson dó fyrir rúmu ári síðan. Bókin um síðdegi flísaleggjarans er stutt (margar bækur LG eru stuttar og þéttar), hún kom út 1991 en ég las hana nokkrum árum...

Frosið brokkólí, skáldalaun og erótískar gáfur

Kofi í snjó Í útjaðri borgarinnar á ég gamalt A-hús, sumarbústað sem var byggður á sjöunda áratug síðustu aldar. Á lóðinni við kofann er ýmislegt ræktað þegar ég nenni, en þar grotnar líka oft gamli rabarbarinn frá fyrri eigendum niður því ég nenni ekki að taka hann upp og nota hann. Í fyrravor sáði ég slatta af (löngu útrunnum) fræjum í beð, þar á meðal var brokkólí. Vegna viðvarandi óveðurs framan af sumri óx lítið af því sem ég sáði og brokkólíið var svo smávaxið í haust að mér fannst ekki taka því að taka það upp. Hins vegar hefur verið ágætt veður í vetur svo að í dag datt mér í hug að fara uppeftir og skoða grænmetið. Það þurfti að dusta snjó af brokkólíinu (það er enginn snjór í póstnúmeri 105 en töluverður í 113 og mun meira frost en í lægri númerum) og brjóta það af stilkunum. Öll uppskeran fór í eitt grænmetislasanja, sem er einmitt núna í ofninum. Hrímað brokkólí Í morgun las ég grein í Dagens Nyheter þar sem nokkur sænsk ljóðskáld eru spurð hvernig þau sjái fyr...

Ljótar ljósmyndir

Stolin mynd af bæjarleikhúsinu  Í krummaskuðinu Krummaborg er gamalt leikhús sem á sér langa sögu . Það stendur við götu sem heitir Horní og er um 200 metra frá aðaltorginu þar sem ég er stödd núna. Í leikhúsinu er kaffihús/bar, eina slíka lókalið ég hef komið inn á í Tékklandi þar sem ekki má reykja. Anddyri leikhússins minnir mig pínulítið á gamla Nýja bíó eða jafnvel Hafnarfjarðarbíó (sem var eitt fallegasta bíó Íslands - en auðvitað var það eyðilagt), það er einhver svoleiðis stemning þarna. Kaffihúsið á neðstu hæð er skemmtilega gamaldags og ekkert of fínt, mismunandi ljósakrónur og lampar og þjónustustúlkan var hressileg. Mér leið samt dálítið eins og á kaffistofu sagnfræðinga við Háskóla Íslands þarna inni í gærkvöldi. Á svæðinu voru nefnilega tólf karlar og ein kona (ég). Já og skömmu síðar bættist þrettándi karlinn í hópinn. Úr anddyrinu Hann hefur komið sér upp listamannslegu yfirbragði dávaldurinn og stjörnu- spekingurinn frá Budejovice. Kannski...