Fortsätt till huvudinnehåll

Pizza-salat, strönd, bækur og hús


Nú er ég búin að taka Åmål betur út en um daginn, það tekur ekki langan tíma að skoða miðbæinn hérna. Ég fór á pítsustað í gærkvöldi og fékk mér til gleði hinn sænska rétt pizzasalat á undan pítsunni. Svo fór ég í göngutúr niður á litla strönd sem er í sjö mínútna göngufjarlægð. Þar var engin manneskja, bara beyglað hjól.



Ég les ekki eins mikið og ég gerði fyrir einhverjum árum. Einu sinni át ég bækur en nú narta ég frekar í þær. En ég er búin að vera að lesa ýmislegt þessa viku sem ég hef verið í Svíþjóð, bæði gott og minna gott, áhugavert og minna áhugavert. Í dag skrifaði ég blogg um eina af bókunum, bókin sjálf er ekki endilega neitt frábær en ég mun sennilega ekki gleyma konunni sem hún fjallar um í bráð. Hér er bloggið.


Það eru mörg falleg hús í Åmål. Líka margar kirkjur miðað við hvað bærinn er lítill. Ég hef rekist á Baptistakirkju, missionskirkju (þar eru AA-fundir auglýstir í auglýsingakassa fyrir utan) Hjálpræðisher, venjulega sænska kirkju með tilheyrandi kirkjugarði, gamla kirkju (sem er líklega safn núna) og svo er hér fyrrverandi Meþódistakirkja sem er búið að selja. Hér eru líka mörg falleg, gömul hús. Annar glugginn á herberginu mínu snýr að þessu húsi.


Kommentarer

Populära inlägg i den här bloggen

Í Bæheimi

Horft yfir borgina fyrsta daginn Þórunn Hrefna biður mig að skrifa eitthvað um svaðilfarir mínar í Tékkó. Það er auðvitað gleðilegt að fólk vilji heyra af mögulegum svaðilförum mínum og ég er reyndar búin að vera í heila viku hér í Český Krumlov í Tékklandi án þess að skrifa neitt  á þessa bloggsíðu sem ég ákvað eiginlega að ætti að vera upphafið að nýju bloggi, og það ekki síst ferðabloggi. Tími til kominn skulum við segja. Hins vegar var alltaf ætlunin að vinna hér í þessum mannfáa miðaldabæ og það hef ég svo sannarlega gert undanfarna viku. Ég hef þýtt margar síður og lesið heilar þrjár bækur. En ég hef líka borðað mikið af ódýrum og góðum mat og drukkið vín frá Moravíu og tékkneskan bjór.

Dylanmennirnir

Bob Dylan er nýorðinn áttræður. Eins og var fyrirsjáanlegt spruttu Dylanmennirnir fram eins og grápöddur undan steinum og fögnuðu í einkamiðlum og á opinberum vettvangi. Fréttatími RÚV í gær fagnaði líka afmælinu með veglegri umfjöllun og einn menningarblaðamaður sagði í yfirskrift blaðagreinar að afmælinu fögnuðu allir góðir menn. Í morgun minntist vinkona mín á tíu ára gamla sænska grein, sem birtist í tilefni sjötugsafmælis nóbelsverðlaunahafans í nöldurkenndu rími (textinn við Positively 4th street hlýtur að vera eitt magnaðasta nöldur bókmenntasögunnar). Greinin  Män som missbrukar Dylan , er eftir Hönnu Fahl og þar fjallar hún um Dylanmennina, en Hanna kveðst hafa hitt margan Dylanmanninn í lífi sínu. Nánasti vinur Hönnu, sagnfræðingurinn og skjalavörðurinn Fredrik Egefur, er Dylanmaður (hann er samt kannski fyrrverandi Dylanmaður núna), en Dylanmenn eru þeir sem vímast gjarna allir upp þegar Dylan berst í tal, þeir geta verið á öllum aldri og með ólíkar pólitískar skoðanir ...

Eitthvað pínulítið um gagnrýni

Stundum les ég eða heyri að þeir sem tjái sig um bókmenntir fái oft yfir sig ægilegar gusur frá óhressum höfundum eða útgefendum. Þetta hef ég aldrei upplifað persónulega þrátt fyrir að hafa skrifað og spjallað um bókmenntir á ýmsum stöðum. Einu sinni skrifaði ég á fjölmiðil (sem nú er dauður) eitthvað í áttina að því að kafli í ákveðinni, þá nýrri, bók hlyti að vera leiðinlegasti kafli gjörvallrar íslenskrar bókmenntasögu, en enginn sendi mér skammarpóst hvað þá kúk í poka. Í mesta lagi hefur einhver hent mér út af facebook-vinalistanum og það er nú bara hressandi. En ég man að höfundur þakkaði mér einu sinni persónulega fyrir skrif um bók eftir sig. Það gerðist í gamla Blómavali við Sigtún. Viðkomandi höfundur, sem er nýbúinn að gefa út ljóðabók, skrifar á þessa síðu . Ég tek það samt fram að ég hef aldrei þurft að gefa bókum stjörnur. Þegar ég skrifaði gagnrýni fyrir Morgunblaðið, það var sennilega fyrir áratug, var stjörnugjöf ekki enn orðin regla. Fyrir nokkrum árum hætti Páll B...

Listakona á Rolfsvej

   Elín Pjet. Bjarnason Sumir rithöfundar og bloggarar fá mörg símtöl, bréf og pósta frá lesendum sínum þar sem brugðist er við skrifunum með ýmsum hætti. Ég fæ lítið af slíkum viðbrögðum nema í formi þumla og einstaka skilaboða á samfélagsmiðlum, sem eru reyndar kærkomnir miðlar sem ég kann að meta. Ég á samt nokkur bréf og pósta frá lesendum, en það er ekki mikið að vöxtum. Kannski eru hinir skrifararnir bara að ljúga eða ýkja viðbrögðin við skrifum sínum til að vekja á sér athygli, það gæti svo sem alveg verið. En hvað sem þessu líður þá fékk ég um daginn, eftir að ég hafði skrifað um höfund lagsins sem sungið er við íslenska þjóðsönginn og eiginkonu hans og húsið sem Sveinbjörn dó í á Friðriksbergi, afar skemmtilega  pósta frá einum lesanda þessarar síðu. Lesandinn sagði mér frá mjög áhugaverðri og jafnframt býsna óþekktri íslenskri listakonu, Elínu Pjet. Bjarnason (1924-2009), sem bjó mestan hluta ævinnar og dó í Danmörku, seinni árin bjó hún einmitt á Friðriksbergi...

Baráttudagur kvenna

  Starfandi framkvæmdastjóri Alþjóðabankans, Mari Pangestu, segir í viðtali við DN að í coronafaraldrinum beri konur þyngsta krossinn. Hún vill kalla þetta alþjóðlega kvennakreppu, að covid-19 hafi breikkað bilið á milli kynjanna og rifið upp gamla mismunun. Kvennastéttir hafa orðið verst úti og konur hugsa mest um börnin sem sum hafa ekki hafa fengið að fara í skólann í lengri tíma. Meðan ég las viðtalið við hana, sem fjallar um konur um allan heim, rifjuðust upp fréttir sem ég hef lesið um að ekki sé hugað að jafnrétti í ákvörðunum á Íslandi, til dæmis er ein nýleg hérna um karllægar aðgerðir stjórnvalda . Í dag verður kynnt kæra níu íslenskra kvenna til Mannréttindadómstóls Evrópu . Konurnar kæra íslenska ríkið fyrir að fella niður mál þeirra. Þær höfðu kært kynferðisof­beldi, heim­il­isof­beldi eða kyn­bundna áreitni en mál þeirra voru felld niður í íslensku réttarkerfi. Ofbeldi í garð kvenna er kerfisbundið. Til hamingju með baráttudag kvenna!

Myndasmíði

Þegar yngri sonur minn var á leikskóla í Svíþjóð komu einu sinni skilaboð frá leikskólastarfsmönnum þar sem foreldrar voru beðnir að hætta að mæta með myndavélar á viðburði skólans. Ég man sérstaklega eftir nokkrum foreldrum frá Asíulöndum sem stóðu fremst þegar börnin sýndu leikrit eða sungu og byrgðu öðrum sýn á meðan þeir mynduðu börnin sín með vídeótökuvélum. Skilaboðunum fylgdi létt-passív agressív nóta um að það væri skemmtilegt að horfa á börnin koma fram og njóta þess bara meðan á uppákomunni stæði. Þetta var fyrir tíma farsíma með myndavélum, en mér datt þetta í hug  í gærkvöldi þegar instagramið fylltist af sólarlögum. Þá hugsaði ég með mér að það væri kannski gaman ef fólk hætti að taka myndir af sólarlaginu og horfði bara á það. Ég verð sennilega svona yfirlætisfull þegar síminn minn er ónýtur og ég get ekki tekið myndir og sett á instagram. Auk þess sést aldrei sólarlag heima hjá mér því ég bý á lægsta punktinum í Norðurmýri. Þegar yfirborð sjávar hækkar að ráði verður...

Stuttar bækur og langar

Um helgina var ég ein heima. Ég hitti skemmtilegt fólk í nokkra klukkutíma á föstudag og laugardag en að öðru leyti var ég ein. Það er svo sem ekkert til að ræða svona þannig séð, ég er alltaf mjög mikið ein og finnst það frekar þægilegt. Marga daga fæ ég líka fáa tölvupósta og hef aðallega samskipti við fólk á Twitter, en þau samskipti flokkast nánast ekki sem samskipti. En já, ég var ein um helgina og las auðvitað bók. Mjög undarlega bók, eina þá furðulegustu sem ég hef lesið. Ég er reyndar bara hálfnuð með bókina sem heitir 271 dagur eða 251 dagur eða eitthvað þannig. Ég man ekki hvað dagarnir eru margir nákvæmlega en það er alla vega eitthvað þarna með marga daga. Bókin er eins konar dagbók margra barna móður sem er að skilja við manninn sinn sem hún kynntist eftir að hann pókaði hana á facebook. Ég og þessi kona eigum ekki margt sameiginlegt en ég held samt áfram að lesa. Konan býr á Reyðarfirði. Það stendur ekki í bókinni að hún búi nákvæmlega þar, heldur bara að hún búi í litlum...

Málfar

Málbreytingar hafa mér alltaf fundist áhugaverðar. Ég man nákvæmlega hvar og hvenær ungur maður otaði að mér konfektkassa árið 1985 og bauð mér mola með orðunum: „Ég var að versla mér konfekt“. Mér fannst þetta merkilegt orðfæri, ég hafði aldrei heyrt sögnina að versla notaða nema um magninnkaup og verslunarleiðangra. Nú er alvanalegt að menn versli sér skópar eða pulsu og ég er löngu hætt að velta þessu orðalagi fyrir mér. Ég man líka að ég heyrði dvalarhorfið fyrst notað eins og nú er mjög algengt þegar kona sem ég vann með á leikskóla í Austurbænum árið 2001 sagði „Ég er ekki að skilja þetta barn.“ Mér fannst þetta áhugavert, enda skrifaði Jón G. Friðjónsson pistil í Moggann nokkrum árum síðar og sagði þetta komið frá íþróttafréttamönnum og brjóta í bága við málvenjur. Ég held samt að mér hafi fundist þetta töff og að það hafi liðið mjög skammur tími þar til ég hafði tekið upp þennan dvalarhorfsósið. Áðan byrjaði ég að lesa nýja bók eftir ungan höfund (ég er líklega byrjuð á a...

Fuglasöngur

Spói ( Numenius phaeopus) Í gær fékk ég póst frá ritstjóra tímarits. Þar var ég beðin um að skrifa pistil um ákveðið efni í tímaritið. Að launum fyrir pistilinn er í boði árs áskrift að tímaritinu. Ég brást vel við erindi ritstjórans, ég hef sjálf verið ritstjóri tímarits og veit að það er ekki hlaupið að því að fá fólk til að skrifa pistla eftir dyntum ritstjóra og ég veit líka að það er erfitt að halda úti tímaritum í örlitlu málsamfélagi. Ég kýs að líta á skrifin sem eins konar samfélagsþjónustu, svona svipað og að Vitabar sinnir ýmsum þörfum samborgaranna (þessi loðna samlíking þyrfti hugsanlega útskýringar við en ég stend ekki í því að útskýra neitt, þetta les hvort sem er enginn). Gallinn við pistlaskrifin er hins vegar sá að ég þarf að skila pistlinum fyrir mánudag. Ég passaði mig á því þegar ég var ritstjóri að biðja fólk um að skila skrifum með löngum fyrirvara, fólk tekur miklu frekar vel í það að gera eitthvað smáræði ef því er sagt að það hafi marga mánuði til að vinna verk...

Portúgal og Fönix

Horfði með öðru auganu á söngvakeppnina á tölvuskjánum. Mér sýndist þetta mikið strákafestival en ég gaf mér ekki tíma til að telja hausa og reikna prósentur eins og ég á alveg til stundum. Á meðan keppnin fór fram lék ég líka svokallaðan kaffihúsaleik, hann fólst aðallega í því að sitja á gólfinu og borða poppkorn. Krúttlegir þessir Portúgalar en ég er nú ekki svo hrifnæm að ég hafi tárast, hvað þá grátið á portúgölsku eins og einn ágætur maður sagðist á facebookvegg hafa gert. Það þarf nú eitthvað meira en þetta raul til að mitt ískalda steinhjarta bráðni. Í dag var enn eina ferðina fugl í kamínunni í sumarhöll vindanna. Við heyrðum í honum í reykrörinu þar sem hann sat kannski fastur. Eftir bank í rörið og tilraunir okkar Lísu til að lokka hann niður með tekexi og vatni hrundi hann loks niður í ofninn. Þá var hægt að opna fyrir honum og hann flaug út í vorið. Þetta var enginn Fönix, bara ungur stari. Þessa mynd tók ég fyrir nákvæmlega einu ári í Póvoa de Varzim í Portúgal.