Fortsätt till huvudinnehåll

Ljótar ljósmyndir

Stolin mynd af bæjarleikhúsinu 
Í krummaskuðinu Krummaborg er gamalt leikhús sem á sér langa sögu. Það stendur við götu sem heitir Horní og er um 200 metra frá aðaltorginu þar sem ég er stödd núna. Í leikhúsinu er kaffihús/bar, eina slíka lókalið ég hef komið inn á í Tékklandi þar sem ekki má reykja. Anddyri leikhússins minnir mig pínulítið á gamla Nýja bíó eða jafnvel Hafnarfjarðarbíó (sem var eitt fallegasta bíó Íslands - en auðvitað var það eyðilagt), það er einhver svoleiðis stemning þarna. Kaffihúsið á neðstu hæð er skemmtilega gamaldags og ekkert of fínt, mismunandi ljósakrónur og lampar og þjónustustúlkan var hressileg. Mér leið samt dálítið eins og á kaffistofu sagnfræðinga við Háskóla Íslands þarna inni í gærkvöldi. Á svæðinu voru nefnilega tólf karlar og ein kona (ég). Já og skömmu síðar bættist þrettándi karlinn í hópinn.

Úr anddyrinu
Hann hefur komið sér upp
listamannslegu yfirbragði
dávaldurinn og stjörnu-
spekingurinn frá Budejovice.
Kannski hanga tékkneskar konur lítið á kaffihúsum og börum en þegar ég fór á klósettið datt mér í hug önnur skýring á fjarveru þeirra. Í anddyri leikhússins er nefnilega hörmulega ósmekkleg ljósmyndasýning. Myndirnar eru sams konar og eru stundum af hálfberum konum (eða voru? ég vona að þetta sé liðin tíð) á öftustu síðu í dönskum blöðum og Séð og heyrt og víðar. Jesúítarnir sem stofnuðu leikhúsið einhverntíma upp úr 1600 ættu að sjá þessa skelfingu. Ég tók auðvitað mynd af kynningunni á myndasmiðnum og fletti honum svo upp á netinu áðan og komst að því að hann tekur ekki bara kjánalegar myndir heldur er hann líka stjörnuspekingur og dáleiðandi! Varúð: Það er algjörlega ykkar vandamál ef þið smellið á þessa krækju en svona eru myndirnar á ljósmyndasýningunni í fallega leikhúsinu og meira að segja margar enn hryllilegri af brjóstaberum konum í soft fókus (það þýðir ekkert segja að ég hafi ekki varað ykkur við).

Í gær var ákveðið að nóg væri komið af dýraholdsáti í bili og farið á grænmetisstaðinn Laibon, sem er líklega eini grænmetisveitingastaður bæjarins. Á móti okkur tók geltandi hundur. Það er reyndar mjög algengt að hundar verði á vegi manns hérna og það má hafa dýrin sín með sér hvert sem er - sem mér finnst í raun alveg ágætt. En það sem verra var er að maturinn var annars vegar jukk sem júróhippatýpan hitaði í örbylgjuofni og hins vegar djúpsteikt grænmeti í deigi sem var ekkert spes. Þetta slapp svo sem alveg og var ekkert óætt en ég ætla bara að halda mig við gúllas, snitsel og kannski fisk á meðan ég er hérna, ég á líka alveg eftir að prófa vatnakarfa. Það kostar lítið að borða í Tékkó. Það er hægt að fá ágæta máltíð fyrir tvo fyrir tvöþúsundkall. Og já, bjórinn er ódýrari en vatnið, hann kostar jafnvel bara svona eina evru.

Annað sem er títt er að facebook er biluð í Tékkó. Hún næst alla vega ekki hjá mér þannig að það þýðir ekkert að senda mér skilaboð í gegnum það verkfæri Satans.

Tékkneskir karlmenn spjalla á leikhúsbarnum

Ég að býsnast yfir smekklausum ljósmyndum


Kommentarer

  1. Sýningarmyndirnar minna á amatöramyndir sem voru afar vinsælar á flicr fyrir nokkrum árum.

    SvaraRadera
  2. Ég hélt að þetta yrðu einhverjar svona retro pin-up myndir og fannst þú ægilega forpokuð að vera svona hneyksluð. Svo smellti ég á hlekkinn og finnst þú ekki forpokuð lengur...

    SvaraRadera
  3. Það eru örugglega 30 myndir á sýningunni, hver annarri stórfenglegri.

    SvaraRadera

Skicka en kommentar

Populära inlägg i den här bloggen

Guðný Eyjólfsdóttir - sjáandinn á Vesturbrú

Þessar vikunar er ég umsjónarkona þátta sem eru á laugardögum á Rás1. Þeir fjalla um ævi Guðnýjar Eyjólfsdóttir Vestfjörð sem fæddist á köldu vori árið 1888 og ólst upp í torfkofa í Nauthólsvík. Systir hennar, Jósefína, er mun þekktari á Íslandi en Guðný, en hún var spákona á Grímsstaðaholtinu. Upp úr tvítugu sigldi Guðný til Kaupmannahafnar þar sem hún vann láglaunastörf, varð einstæð móðir, komst í kast við lögin og gerðist spákona og heilari yfirstéttar Kaupmannahafnarborgar. Í þáttunum segir frá ýmsu sem dreif á daga Guðnýjar, en hún er fræg í tveimur jaðarhópum í Danmörku, annars vegar meðal spíritista og hins vegar áhugafólks um gömul morðmál. Hér er fyrsti þátturinn um sjáandann á Vesturbrú. Uppfært: Nú eru komnir fjórir þættir og þeir eru hér:  https://www.ruv.is/utvarp/spila/sjaandinn-a-vesturbru/33053/9r6v6k   Guðný Eyjólfsdóttir 1905 Jósefína Eyjólfsdóttir 1916

Dylanmennirnir

Bob Dylan er nýorðinn áttræður. Eins og var fyrirsjáanlegt spruttu Dylanmennirnir fram eins og grápöddur undan steinum og fögnuðu í einkamiðlum og á opinberum vettvangi. Fréttatími RÚV í gær fagnaði líka afmælinu með veglegri umfjöllun og einn menningarblaðamaður sagði í yfirskrift blaðagreinar að afmælinu fögnuðu allir góðir menn. Í morgun minntist vinkona mín á tíu ára gamla sænska grein, sem birtist í tilefni sjötugsafmælis nóbelsverðlaunahafans í nöldurkenndu rími (textinn við Positively 4th street hlýtur að vera eitt magnaðasta nöldur bókmenntasögunnar). Greinin  Män som missbrukar Dylan , er eftir Hönnu Fahl og þar fjallar hún um Dylanmennina, en Hanna kveðst hafa hitt margan Dylanmanninn í lífi sínu. Nánasti vinur Hönnu, sagnfræðingurinn og skjalavörðurinn Fredrik Egefur, er Dylanmaður (hann er samt kannski fyrrverandi Dylanmaður núna), en Dylanmenn eru þeir sem vímast gjarna allir upp þegar Dylan berst í tal, þeir geta verið á öllum aldri og með ólíkar pólitískar skoðanir ...

Reynsluheimar lesenda

  Í gær hélt ég útgáfuboð í lokaðri bókabúð sem hafði orðið fyrir tölvuárás og verið skellt í lás. Það mættu samt margir og ég gat farið glöð að sofa í gærkvöldi. Í boðinu var ég spurð hvort ég væri ekki komin í frí. Það fannst mér skemmtilegt því að þó að mér finnist ég eiginlega ekki beinlínis vera í vinnu þá finnst mér ég aldrei eiga frí. Vegna þessarar spurningar ákvað ég samt að taka mér frí í dag frá því að skrifa útvarpsþátta- og sjónvarpsþáttahandrit, sem eru helstu verkefni mín þessa dagana. Ég get ekki afsakað mig með því að þykjast vera upptekin við kynningar á nýjum bókum mínum, þýðingu og smásagnasafni, ég er bókuð á tvo upplestra og alls ekki neitt annað. Þetta er aldeilis eitthvað annað en Eiríkur Örn Norðdahl sem þýtur umhverfis landið með posa og bókakassa og kynnir og selur nýju bókina sína og segist vera til í að mæta í viðtöl í næstu viku. Ég er auðvitað bara miklu latari en Eiríkur og svo er mér svakalega illa við að aka eftir þjóðvegum Íslands að vetrarlagi....

Haustið og froskarnir

Það er næstum liðið ár síðan ég skrifaði síðast á þessa síðu. Á því ári hefur margt gerst. Ég ætla ekki að ræða það neitt frekar hér, datt bara í hug að gera það að haustheiti að endurlífga bloggsíðuna og því þurfti ég að prófa hvort ég kæmist enn hér inn. Það er ýmislegt á döfinni eins og gengur á haustin. Hvað mig varðar snýr það að bókum og fjölmiðlaverkefnum, en nýjasta trendið í örvandi efnum ku hins vegar vera að reykja froska. Það finnst mér vissulega undarlegt áhugamál.  Í Dagens Nyheter í dag er sagt frá því að fólk sem fékk ADHD-greiningu sem börn sé nú að fara í aðra greiningu sem losar það við ADHD-díagnósuna. Kannski er því batnað eða að það var ranggreint með ADHD. Þetta gerir fólk m.a. vegna þess að greiningin hamlar því, t.d. getur það aftrað því að það komist í lögreglunám. Með mér blundar umtalsverður áhugi á menningarbundnum sjúkdómsgreiningum (það kom til dæmis fram hér ), en í þetta skiptið er ég ekki sérstaklega að spá í ADHD-greiningar, heldur er ég að hugsa ...

Dánarstaður menningarmanns

Dr. Priemes Vej 1 árið 1947 Einu sinni var nítján ára stúlka sem hét Eleanor Christie. Hún bjó með móður sinni, ekkju eftir lögmann, í Bolfracks Cottage, nálægt Aberfeldy í miðjum skosku hálöndunum. Eleanor hafði gengið í einkaskóla á heimaslóðum og heimavistarskóla í York, hún var drátthög og áhugasöm um listir og málaði blómamyndir. Hún átti gamla tónelska frænku sem bjó í Wales, frænkan hét Helen Powell. Stundum kom vinur Helen í heimsókn til hennar og dvaldi hjá henni í Wales. Þetta var miðaldra músíkant sem ættaður var frá Íslandi, en hann hafði hátt í tvo áratugi búið í Edinborg og kompónerað tónlist og stundað píanóleik og kennslu. Eitt sinn þegar píanóleikarinn heimsótti gömlu vinkonu sína rak hann augun í mynd af stúlku sem honum þótti sjarmerandi og spurðist fyrir um hana. Helen sagði honum að þetta væri Eleanor frænka hennar sem byggi í Skotlandi. Manninum leist svo vel á stúlkuna að hann bað um að hann yrði kynntur fyrir mömmu hennar. Gömlu frænkunni fannst það sjálfsagt má...

Frosið brokkólí, skáldalaun og erótískar gáfur

Kofi í snjó Í útjaðri borgarinnar á ég gamalt A-hús, sumarbústað sem var byggður á sjöunda áratug síðustu aldar. Á lóðinni við kofann er ýmislegt ræktað þegar ég nenni, en þar grotnar líka oft gamli rabarbarinn frá fyrri eigendum niður því ég nenni ekki að taka hann upp og nota hann. Í fyrravor sáði ég slatta af (löngu útrunnum) fræjum í beð, þar á meðal var brokkólí. Vegna viðvarandi óveðurs framan af sumri óx lítið af því sem ég sáði og brokkólíið var svo smávaxið í haust að mér fannst ekki taka því að taka það upp. Hins vegar hefur verið ágætt veður í vetur svo að í dag datt mér í hug að fara uppeftir og skoða grænmetið. Það þurfti að dusta snjó af brokkólíinu (það er enginn snjór í póstnúmeri 105 en töluverður í 113 og mun meira frost en í lægri númerum) og brjóta það af stilkunum. Öll uppskeran fór í eitt grænmetislasanja, sem er einmitt núna í ofninum. Hrímað brokkólí Í morgun las ég grein í Dagens Nyheter þar sem nokkur sænsk ljóðskáld eru spurð hvernig þau sjái fyr...

Svalir og ósvalari höfundar

Ég sakna Lesbókar Morgunblaðsins. Þegar hún fylgdi blaðinu var ég helgaráskrifandi og las greinar á íslensku um menningu og bókmenntir með morgunkaffinu á laugardögum. Núna les ég greinar um bókmenntir og menningu á ensku eða norðurlandamálunum af skjá. Það er ekki eins gaman. Ég man til dæmis eftir að hafa lesið eitthvað um Thomas Pynchon í Lesbókinni. Ég hef aldrei lesið bók eftir þann mann og það er ósennilegt að ég geri það nokkurn tíma. Ég held að bækurnar hans séu mér ekki að skapi. Mér finnst þessi Pynchon samt forvitnileg týpa, eins og ég held að flestum þyki. Um hann hefur skapast heilmikið költ, eiginlega heill heimur , en höfundurinn fer aldrei í viðtöl og vill ekki láta taka af sér myndir. Ég hef blendnar tilfinningar til höfunda sem eru svona rosalega mannafælnir, mér finnst þetta stælar og yfirlæti, en um leið finnst mér höfundar sem eru út um allt að plögga sjálfa sig líka svolítið ósvalir. Hér er grein sem ég las í morgun um Pynchon , hún er mjög skemmtileg.  Það se...

Táin á Tollundmanninum

Í Silkeborg á Jótlandi eru varðveittar leifar af manni sem fannst í danskri mýri um miðja síðustu öld. Þegar ég var unglingur fór ég og skoðaði Tollundmanninn og fékk þessa rúmlega tvö þúsund ára gömlu múmíu svolítið á heilann og póstkort af karlinum hékk árum saman uppi á vegg í herbergjum sem ég bjó í. Á þeim árum var ekki til neitt internet og ég fann sáralitla umfjöllun um þennan forvitnilega mann svo póstkortið varð að duga mér í mörg ár. Þegar ég, ásamt góðum meðhöfundi, skrifaði kennslubók fyrir miðstig grunnskóla fyrir nokkrum árum, sá ég til þess að koma Tollundmanninum inn í bókina og ég vona að börnin sem lesa hana og kennarar þeirra kunni að meta það. Þegar ég sé fjallað um Tollundmanninn, og fleira fólk sem hefur fundist í mýrum í Danmörku, verð ég alltaf forvitin og meðal þess sem mér hefur fundist skemmtilegt er frétt sem birtist í dönskum fjölmiðlum fyrir nokkru síðan. Fréttin fjallar um tá sem var á fæti Tollundmannsins en lenti á flækingi. Það hafa ýmis vandamál ko...

Hraði hins talaða máls

Ef ég héldi mína persónulegu kvikmyndahátíð þá yrði hún gamaldags og full af myndum sem ég sá sem krakki og nokkrum sem ég sá á kvikmyndahátíð þegar ég var í menntaskóla. Mögulega veldi ég einhverja eftir Fassbinder og þessa um kvöldverðarboðið hjá borgarastéttinni eftir Luis Buñuel, Midnight Cowboy yrði líka sýnd og sömuleiðis 3 Women eftir Robert Altman. Psycho væri einhvers staðar á dagskránni, Fílamaðurinn , Nosferatu , Fanny og Alexander, Crossing Delancey, Frankie og Johnny  og kannski Romancing the Stone eða Smokey and the Bandit . Íslenska bíómyndin yrði mögulega Fíaskó , hana sá ég reyndar bara í fyrsta skipti um daginn, en mér fannst hún mjög skemmtileg. Þetta yrði augljóslega mjög illa sótt kvikmyndahátíð og teldist til lítilla tíðinda.  Þetta fór ég nú bara að hugsa um í morgun þegar ég las um norska rannsókn sem sýnir að talhraði fólks hefur aukist um 50 % síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Mér finnst nefnilega allt gerast allt of hratt í nýjum bíómyndum, ég á ...