Fortsätt till huvudinnehåll

Baráttudagur kvenna

 


Starfandi framkvæmdastjóri Alþjóðabankans, Mari Pangestu, segir í viðtali við DN að í coronafaraldrinum beri konur þyngsta krossinn. Hún vill kalla þetta alþjóðlega kvennakreppu, að covid-19 hafi breikkað bilið á milli kynjanna og rifið upp gamla mismunun. Kvennastéttir hafa orðið verst úti og konur hugsa mest um börnin sem sum hafa ekki hafa fengið að fara í skólann í lengri tíma. Meðan ég las viðtalið við hana, sem fjallar um konur um allan heim, rifjuðust upp fréttir sem ég hef lesið um að ekki sé hugað að jafnrétti í ákvörðunum á Íslandi, til dæmis er ein nýleg hérna um karllægar aðgerðir stjórnvalda.

Í dag verður kynnt kæra níu íslenskra kvenna til Mannréttindadómstóls Evrópu. Konurnar kæra íslenska ríkið fyrir að fella niður mál þeirra. Þær höfðu kært kynferðisof­beldi, heim­il­isof­beldi eða kyn­bundna áreitni en mál þeirra voru felld niður í íslensku réttarkerfi. Ofbeldi í garð kvenna er kerfisbundið.

Til hamingju með baráttudag kvenna!



Kommentarer

Populära inlägg i den här bloggen

Guðný Eyjólfsdóttir - sjáandinn á Vesturbrú

Þessar vikunar er ég umsjónarkona þátta sem eru á laugardögum á Rás1. Þeir fjalla um ævi Guðnýjar Eyjólfsdóttir Vestfjörð sem fæddist á köldu vori árið 1888 og ólst upp í torfkofa í Nauthólsvík. Systir hennar, Jósefína, er mun þekktari á Íslandi en Guðný, en hún var spákona á Grímsstaðaholtinu. Upp úr tvítugu sigldi Guðný til Kaupmannahafnar þar sem hún vann láglaunastörf, varð einstæð móðir, komst í kast við lögin og gerðist spákona og heilari yfirstéttar Kaupmannahafnarborgar. Í þáttunum segir frá ýmsu sem dreif á daga Guðnýjar, en hún er fræg í tveimur jaðarhópum í Danmörku, annars vegar meðal spíritista og hins vegar áhugafólks um gömul morðmál. Hér er fyrsti þátturinn um sjáandann á Vesturbrú. Uppfært: Nú eru komnir fjórir þættir og þeir eru hér:  https://www.ruv.is/utvarp/spila/sjaandinn-a-vesturbru/33053/9r6v6k   Guðný Eyjólfsdóttir 1905 Jósefína Eyjólfsdóttir 1916

Dylanmennirnir

Bob Dylan er nýorðinn áttræður. Eins og var fyrirsjáanlegt spruttu Dylanmennirnir fram eins og grápöddur undan steinum og fögnuðu í einkamiðlum og á opinberum vettvangi. Fréttatími RÚV í gær fagnaði líka afmælinu með veglegri umfjöllun og einn menningarblaðamaður sagði í yfirskrift blaðagreinar að afmælinu fögnuðu allir góðir menn. Í morgun minntist vinkona mín á tíu ára gamla sænska grein, sem birtist í tilefni sjötugsafmælis nóbelsverðlaunahafans í nöldurkenndu rími (textinn við Positively 4th street hlýtur að vera eitt magnaðasta nöldur bókmenntasögunnar). Greinin  Män som missbrukar Dylan , er eftir Hönnu Fahl og þar fjallar hún um Dylanmennina, en Hanna kveðst hafa hitt margan Dylanmanninn í lífi sínu. Nánasti vinur Hönnu, sagnfræðingurinn og skjalavörðurinn Fredrik Egefur, er Dylanmaður (hann er samt kannski fyrrverandi Dylanmaður núna), en Dylanmenn eru þeir sem vímast gjarna allir upp þegar Dylan berst í tal, þeir geta verið á öllum aldri og með ólíkar pólitískar skoðanir ...

Reynsluheimar lesenda

  Í gær hélt ég útgáfuboð í lokaðri bókabúð sem hafði orðið fyrir tölvuárás og verið skellt í lás. Það mættu samt margir og ég gat farið glöð að sofa í gærkvöldi. Í boðinu var ég spurð hvort ég væri ekki komin í frí. Það fannst mér skemmtilegt því að þó að mér finnist ég eiginlega ekki beinlínis vera í vinnu þá finnst mér ég aldrei eiga frí. Vegna þessarar spurningar ákvað ég samt að taka mér frí í dag frá því að skrifa útvarpsþátta- og sjónvarpsþáttahandrit, sem eru helstu verkefni mín þessa dagana. Ég get ekki afsakað mig með því að þykjast vera upptekin við kynningar á nýjum bókum mínum, þýðingu og smásagnasafni, ég er bókuð á tvo upplestra og alls ekki neitt annað. Þetta er aldeilis eitthvað annað en Eiríkur Örn Norðdahl sem þýtur umhverfis landið með posa og bókakassa og kynnir og selur nýju bókina sína og segist vera til í að mæta í viðtöl í næstu viku. Ég er auðvitað bara miklu latari en Eiríkur og svo er mér svakalega illa við að aka eftir þjóðvegum Íslands að vetrarlagi....

Táin á Tollundmanninum

Í Silkeborg á Jótlandi eru varðveittar leifar af manni sem fannst í danskri mýri um miðja síðustu öld. Þegar ég var unglingur fór ég og skoðaði Tollundmanninn og fékk þessa rúmlega tvö þúsund ára gömlu múmíu svolítið á heilann og póstkort af karlinum hékk árum saman uppi á vegg í herbergjum sem ég bjó í. Á þeim árum var ekki til neitt internet og ég fann sáralitla umfjöllun um þennan forvitnilega mann svo póstkortið varð að duga mér í mörg ár. Þegar ég, ásamt góðum meðhöfundi, skrifaði kennslubók fyrir miðstig grunnskóla fyrir nokkrum árum, sá ég til þess að koma Tollundmanninum inn í bókina og ég vona að börnin sem lesa hana og kennarar þeirra kunni að meta það. Þegar ég sé fjallað um Tollundmanninn, og fleira fólk sem hefur fundist í mýrum í Danmörku, verð ég alltaf forvitin og meðal þess sem mér hefur fundist skemmtilegt er frétt sem birtist í dönskum fjölmiðlum fyrir nokkru síðan. Fréttin fjallar um tá sem var á fæti Tollundmannsins en lenti á flækingi. Það hafa ýmis vandamál ko...

Hraði hins talaða máls

Ef ég héldi mína persónulegu kvikmyndahátíð þá yrði hún gamaldags og full af myndum sem ég sá sem krakki og nokkrum sem ég sá á kvikmyndahátíð þegar ég var í menntaskóla. Mögulega veldi ég einhverja eftir Fassbinder og þessa um kvöldverðarboðið hjá borgarastéttinni eftir Luis Buñuel, Midnight Cowboy yrði líka sýnd og sömuleiðis 3 Women eftir Robert Altman. Psycho væri einhvers staðar á dagskránni, Fílamaðurinn , Nosferatu , Fanny og Alexander, Crossing Delancey, Frankie og Johnny  og kannski Romancing the Stone eða Smokey and the Bandit . Íslenska bíómyndin yrði mögulega Fíaskó , hana sá ég reyndar bara í fyrsta skipti um daginn, en mér fannst hún mjög skemmtileg. Þetta yrði augljóslega mjög illa sótt kvikmyndahátíð og teldist til lítilla tíðinda.  Þetta fór ég nú bara að hugsa um í morgun þegar ég las um norska rannsókn sem sýnir að talhraði fólks hefur aukist um 50 % síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Mér finnst nefnilega allt gerast allt of hratt í nýjum bíómyndum, ég á ...

Endurtekið efni

Í morgun settist ég niður til að skrifa grein um rithöfund. Höfundurinn hefur skrifað fjórar skáldsögur og sex leikrit, fengið hátt í þrjátíu verðlaun og verið þýddur á tugi tungumála. Ég er búin að kynna mér verk þessa höfundar, hef tekið viðtöl við hann, lesið bækurnar, séð bíómynd sem gerð var eftir einni þeirra, tvö leikrit og þýtt bók eftir manninn svo ég þekki hann ágætlega. Auðvitað gúgglaði ég samt nafnið hans og skoðaði þó nokkrar greinar á tveimur tungumálum þar sem fjallað er um höfundinn og verkin. Það sem mér finnst áhugavert er að ég var meira og minna alltaf að lesa það sama í þessum greinum. Það er augljóst að blaðamenn og greinahöfundar lesa það sem þeir finna á netinu og hlera það sem fram fer í umræðunni og að það er einhver bolti þarna úti sem rúllar áfram; þykir einn merkasti höfundur sinnar kynslóðar ... Auðvitað er þetta ekki óeðlilegt og svo eru alveg til undantekningar, fræðigreinar og BA-ritgerðir eða álíka sem segja mögulega eitthvað annað, en þetta er samt...

Hórur bókmenntanna

Fyrir nokkrum dögum sagði ég frá því að Camilla Läckberg sæti undir ámæli um að vera ekki höfundur bóka sinna heldur hefði hún ráðið annan höfund í að skrifa að minnsta kosti tvær. Nú hafa umræðurnar um þetta undið upp á sig og höfundapar eitt, Leif og Caroline Grimwalker, tjáði sig í vikunni í sænska ríkisútvarpinu þar sem þau segjast eiga bækur frá öllum stóru forlögunum á metsölulistum, nema hvað bækurnar eru ekki sagðar eftir þau heldur aðra fræga höfunda. Aðspurð segja þau að ekkert sé athugavert við þetta, sumir höfundar anni bara ekki eftirspurn, allir geti ekki verið jafn handfljótir og þau, sem skrifa fimmtán bækur á ári hvort, eða þrjátíu samtals.  Parið Leffe og Caroline Grimwalker er þekkt hjá áhugamönnum um sænskar afþreyingarbókmenntir. Þau gefa út gríðarlegan fjölda verka og skrifa það allt á skipulagshæfni sína og vinnusemi, nú og löngun til að þéna mikla peninga. Þau segjast vera bókmenntaverksmiðja og fyrir einhverju síðan las ég viðtal við þau þar sem þau sögðu...

Mårrans!

Í síðustu viku fór ég til Vestmannaeyja og eftir nokkra daga er Akureyrarferð á döfinni og eftir það Danmerkurferð. Þessa vikuna er ég í Reykjavík að rækta með mér hefðbundið skammdegisþunglyndi og eyða peningum í eitthvað sem ég held að geti fært mér slatta af hamingju. Ég hef samt ekki keypt margar bækur, bara eina ljóðabók sem ég á eftir að lesa, en titillinn lýsir lífi mínu að vissu leyti ágætlega, Ég lagði mig aftur . Ég hef samt lesið nokkrar nýjar og ágætar bækur en mig vantar eiginlega ævisögur, það eru nokkrar að koma út þessa dagana sem mig langar að lesa. Annars er starf þessarar viku, verkefni sem mætti alveg ganga hraðar, að þýða bók um múmínálfa. Það er auðvitað varla hægt að hugsa sér skemmtilegra verkefni svo ég má teljast óskabarn gæfunnar hvað það varðar. Í morgun velti ég því fyrir mér hvort fólk sem safnar múmínálfabollum hafi lesið bækurnar og spáð í Morrann. Vangavelturnar komu til af því að ég las grein um Morrann í útlensku blaði. Þar vék greinarhöfundur að því...

Að gubba af stressi

Jólabókaflóðið er brostið á. Ég kíkti í Eymundsson á Skólavörðustíg í gær og sá að það er hellingur af nýjum bókum, þýddum og sömdum á íslensku, á borðunum, flestar þeirra hef ég ekki heyrt minnst á. Kannski fá margar þeirra enga umfjöllun í fjölmiðlum, nema kannski í einkafjölmiðlum höfundanna og þýðendanna, samfélagsmiðlunum. Það eru þó, sem betur fer, alltaf einhverjar bækur sem fá alvöru fjölmiðlaumfjöllun. Í Morgunblaðinu um daginn birtist gagnrýni um nýja bók þar sem þessi setning kemur fyrir: Bókin er flókin að því leyti að gagnrýnandi skilur ekki hvert hún er að fara . Gagnrýnandinn sem skrifar þetta gefur svo bókinni þrjár og hálfa stjörnu.  Í vikunni var pistill í sænska blaðinu Expressen eftir Lyru Ekström Lindbäck, sem er rithöfundur, blaðakona og doktor í heimspeki, þar sem því er haldið fram að bókmenntirnar þoli ekki lengur gagnrýni og að fólk þoli ekki að lesa eða hlusta á alvöru gagnrýni um bækur. Greinin er örugglega svar við því að nýlega ákvað ritstjórn Aftonbl...

Listakona á Rolfsvej

   Elín Pjet. Bjarnason Sumir rithöfundar og bloggarar fá mörg símtöl, bréf og pósta frá lesendum sínum þar sem brugðist er við skrifunum með ýmsum hætti. Ég fæ lítið af slíkum viðbrögðum nema í formi þumla og einstaka skilaboða á samfélagsmiðlum, sem eru reyndar kærkomnir miðlar sem ég kann að meta. Ég á samt nokkur bréf og pósta frá lesendum, en það er ekki mikið að vöxtum. Kannski eru hinir skrifararnir bara að ljúga eða ýkja viðbrögðin við skrifum sínum til að vekja á sér athygli, það gæti svo sem alveg verið. En hvað sem þessu líður þá fékk ég um daginn, eftir að ég hafði skrifað um höfund lagsins sem sungið er við íslenska þjóðsönginn og eiginkonu hans og húsið sem Sveinbjörn dó í á Friðriksbergi, afar skemmtilega  pósta frá einum lesanda þessarar síðu. Lesandinn sagði mér frá mjög áhugaverðri og jafnframt býsna óþekktri íslenskri listakonu, Elínu Pjet. Bjarnason (1924-2009), sem bjó mestan hluta ævinnar og dó í Danmörku, seinni árin bjó hún einmitt á Friðriksbergi...