Fortsätt till huvudinnehåll

Inlägg

Bækur og lesendur og gagnrýnendur og þýðendur og sænsk verðlaunabók

 Hver einasta bók á skilið góða lesendur, eða alla vega einn góðan lesanda, sem tekur á móti verkinu af sanngirni, hugsar vandlega um það sem stendur í textanum, lifir sig inn í heim persónanna og mætir heiminum, sem einmitt þessi ákveðna bók býður upp á, með opnum huga. Þess vegna eru gagnrýnendur mjög mikilvægir. Þeir eru auðvitað ólíkir og misjafnir, en þeir sem eru bestir eru einmitt svona góðir lesendur. Þýðendur þurfa líka að vera mjög góðir lesendur, líklega er enn mikilvægara að þeir mæti textanum sem þeir eru að þýða með sem flest skilningarvit opin. Stundum þarf þýðandinn líka að kunna að rúnta um einhverjar ókunnar einstefnugötur og finna leiðir til að komast út úr furðulegustu botnlöngum. Þetta var ég að hugsa um áðan á meðan ég steikti fisk og hlustaði á beina útsendingu frá afhendingu sænsku Augustverðlaunanna. Í ár voru, ásamt fleirum, tilnefndir tveir mjög ólíkir höfundar sem ég hef þýtt mjög ólíkar bækur eftir, en þessar bækur þeirra sem voru tilnefndar í ár hef ég...

Reynsluheimar lesenda

  Í gær hélt ég útgáfuboð í lokaðri bókabúð sem hafði orðið fyrir tölvuárás og verið skellt í lás. Það mættu samt margir og ég gat farið glöð að sofa í gærkvöldi. Í boðinu var ég spurð hvort ég væri ekki komin í frí. Það fannst mér skemmtilegt því að þó að mér finnist ég eiginlega ekki beinlínis vera í vinnu þá finnst mér ég aldrei eiga frí. Vegna þessarar spurningar ákvað ég samt að taka mér frí í dag frá því að skrifa útvarpsþátta- og sjónvarpsþáttahandrit, sem eru helstu verkefni mín þessa dagana. Ég get ekki afsakað mig með því að þykjast vera upptekin við kynningar á nýjum bókum mínum, þýðingu og smásagnasafni, ég er bókuð á tvo upplestra og alls ekki neitt annað. Þetta er aldeilis eitthvað annað en Eiríkur Örn Norðdahl sem þýtur umhverfis landið með posa og bókakassa og kynnir og selur nýju bókina sína og segist vera til í að mæta í viðtöl í næstu viku. Ég er auðvitað bara miklu latari en Eiríkur og svo er mér svakalega illa við að aka eftir þjóðvegum Íslands að vetrarlagi....

Damelitteratur

Á Bókmenntahátíð í Reykjavík í vor ræddi ég, í minglveislu, um Tove Ditlevsen við fremur ungan danskan útgefanda sem var gestur á hátíðinni. Hann sagði að honum fyndist gaman hvað Tove væri loks að ná út í stóra heiminn hátt í hálfri öld eftir andlát sitt. Hann sagði mér líka að þegar hann var að læra bókmenntafræði, sem var varla fyrir mjög löngu þessi maður er örugglega ekki orðinn fertugur, sagði prófessor sem kenndi honum einhver námskeið það vera dæmi um slæman bókmenntasmekk að kunna að meta Tove Ditlevsen. Hún var sögð banal og gamaldags og Nanna Mogensen sem er gagnrýnandi hjá Danmarks Radio sagði líka að bækur Tove Ditlevsen hefðu fyrir nokkrum áratugum verið afgreiddar sem „damelitteratur“ það þarf ekkert að útskýra hvað sá stimpill gerir fyrir bókmenntaverk. Tove Ditlevsen gaf út fyrstu bók sína, ljóðasafnið Pigesind árið 1939, þá var hún rúmlega tvítug og gift mörgum áratugum eldri manni, Viggo F. Møller, sem hún skildi síðan fljótlega við eins og sagt er frá í Gift , sem ...

Hraði hins talaða máls

Ef ég héldi mína persónulegu kvikmyndahátíð þá yrði hún gamaldags og full af myndum sem ég sá sem krakki og nokkrum sem ég sá á kvikmyndahátíð þegar ég var í menntaskóla. Mögulega veldi ég einhverja eftir Fassbinder og þessa um kvöldverðarboðið hjá borgarastéttinni eftir Luis Buñuel, Midnight Cowboy yrði líka sýnd og sömuleiðis 3 Women eftir Robert Altman. Psycho væri einhvers staðar á dagskránni, Fílamaðurinn , Nosferatu , Fanny og Alexander, Crossing Delancey, Frankie og Johnny  og kannski Romancing the Stone eða Smokey and the Bandit . Íslenska bíómyndin yrði mögulega Fíaskó , hana sá ég reyndar bara í fyrsta skipti um daginn, en mér fannst hún mjög skemmtileg. Þetta yrði augljóslega mjög illa sótt kvikmyndahátíð og teldist til lítilla tíðinda.  Þetta fór ég nú bara að hugsa um í morgun þegar ég las um norska rannsókn sem sýnir að talhraði fólks hefur aukist um 50 % síðan í seinni heimsstyrjöldinni. Mér finnst nefnilega allt gerast allt of hratt í nýjum bíómyndum, ég á ...

Norræn hlaðvörp og íslensk ættfræði

Ekki hef ég mátt vera að því að skrifa mikið hér undanfarið. Trúið mér eða trúið mér ekki en ég hef haft mikið að gera. Um daginn skrapp ég til Svíþjóðar, nánar til tekið til Emmaboda í Smálöndum þar sem var tekið vel á móti mér. Þangað tók ég lest frá Kaupmannahöfn og auðvitað eru lestar langbesti ferðamátinn. Ég var með nesti og bókað sæti og rak stelpu úr sætinu mínu við gluggann. Fékk auðvitað samviskubit (ég er svo vonlaus í að vera frekjubeygla og á svo erfitt með að láta hafa fyrir mér) en ég hef svo oft verið rekin úr bókuðum sætum sem ég hef hlammað mér í í sænskum og dönskum lestum að ég ákvað að taka þetta alla leið. Skandinavíska kerlingaleiðin er að vera jobbig týpa sem kann mun á réttu og röngu og er með prinsipp. Ég þekki mitt fólk og hef ákveðið að svara í sömu mynt.  Undanfarið hef ég vanið mig á að hlusta á podköst áður en ég sofna. Margt fólk segist láta hlaðvarpsþætti svæfa sig svo ég ákvað að prófa. Í fyrstu valdi ég of áhugaverða þætti, ég var oftast svo áhuga...

Prófessor í hamingju

Við Handelshögskolan í Stokkhólmi er búið að stofna Center for wellbeing, wellfare and happiness , sem á að verða fjölþjóðlegt þekkingarsetur um hamingju og vellíðan. Það er líka búið að ráða prófessor við þetta setur, hann heitir Micael Dahlén og var áður prófessor við sama skóla í markaðsfræði og neytendahegðun. Micael Dahlén hef ég oft séð í sjónvapsviðtölum, hann er skemmtilegur og mjög töff prófessor, svo töff að hann er með húðflúr á puttunum, það er auðvitað bara ofursvalt fólk sem er með svoleiðis. Micael Dahlén er fæddur 1973 og varð prófessor 34 ára, yngstur Svía. Hann er líka svo töff að hann gerir æfingavídeó fyrir fólk og hefur skrifað bók um líkamsrækt, hann fjuff-tränar, eins og hann kallar það, sem þýðir að hann æfir lítið og oft.  Í morgun las ég viðtal við Micael Dahlén sem er tekið í tilefni af nýja prófessorsstarfinu (sem ég öfunda hann smá af, hversu mikið væri ég ekki til í að vera hálaunaður prófessor í hamingjufræðum einmitt núna þegar listamannalaunatímabi...

Hórur bókmenntanna

Fyrir nokkrum dögum sagði ég frá því að Camilla Läckberg sæti undir ámæli um að vera ekki höfundur bóka sinna heldur hefði hún ráðið annan höfund í að skrifa að minnsta kosti tvær. Nú hafa umræðurnar um þetta undið upp á sig og höfundapar eitt, Leif og Caroline Grimwalker, tjáði sig í vikunni í sænska ríkisútvarpinu þar sem þau segjast eiga bækur frá öllum stóru forlögunum á metsölulistum, nema hvað bækurnar eru ekki sagðar eftir þau heldur aðra fræga höfunda. Aðspurð segja þau að ekkert sé athugavert við þetta, sumir höfundar anni bara ekki eftirspurn, allir geti ekki verið jafn handfljótir og þau, sem skrifa fimmtán bækur á ári hvort, eða þrjátíu samtals.  Parið Leffe og Caroline Grimwalker er þekkt hjá áhugamönnum um sænskar afþreyingarbókmenntir. Þau gefa út gríðarlegan fjölda verka og skrifa það allt á skipulagshæfni sína og vinnusemi, nú og löngun til að þéna mikla peninga. Þau segjast vera bókmenntaverksmiðja og fyrir einhverju síðan las ég viðtal við þau þar sem þau sögðu...