Fortsätt till huvudinnehåll

Félagsbústaðir og vélanám

Það eru nokkrar rásir sem spilast í höfðinu á mér á hverjum tíma. Það er svo sem ekkert beinlínis að því (ég hélt einu sinni að allt fólk væri svona en nú skilst mér að það séu tekin lyf við þessu) en alla vega ákvað ég að skrifa niður eitthvað af því sem hefur bergmálað innra með mér í morgun.

Byrjum á einni spurningu: Hvenær tók Vanilla Black, sem er útum allt í flösku sem pinnar standa uppúr, við af Ariel Ultra sem íslenska ríkislyktin? Ég hef oft rætt um Norðmanninn sem sagði mér að hann þekkti Íslendinga í strætó í Osló á þvottaefnislyktinni, en núna er það þessi Vanilla Black-lykt sem hefur yfirtekið þjóðfélagið. Mér persónulega finnst hún betri en þvottaefnislykt (ég nota bara svansmerkt og lyktarlaust þvottaefni) og er alveg í vanillu-teyminu, en þetta er samt kannski að verða gott með þessa lykt? Á meðan lesendur velta þessu fyrir sér ætla ég að snúa mér að næsta máli:

Það bjó svokallaður svikahrappur í íbúð Félagsbústaða í um það bil áratug og át þar lyf út á resept látinnar konu. Hvað er að hjá Félagsbústöðum spyr ég nú bara, er enginn húsvörður þarna? Ég er nýbúin að hlusta á þriggja þátta röð í sænska útvarpinu um fólk sem er kallað hoarders. Það sankar að sér svo miklu dóti að það kemst á endanum ekki fyrir heima hjá sér og í tilviki eins viðmælanda sænska útvarpsins var hann búinn að slíta sambandi við móður sína vegna söfnunaráráttu hennar. Hann gaf henni ekki upp hvar hann bjó því hann var viss um að þá myndi hún mæta með sendiferðabíl og heimta að geyma drasl hjá honum og það vildi hann ekki. Móðurinni hafði verið vísað út úr leiguíbúð sænsku félagsbústaðanna fyrir að vera með of mikið dót. Þetta gerist víst reglulega í mínu gamla heimalandi vegna þess að þar eru leigusalar sem fylgjast með fólki og þar eru svokallaðir HÚSVERÐIR. Það er nefnilega ekki séns að þú getir búið í áratug einhvers staðar án þess að eitthvað þurfi að laga. Í Sverige kemur einhver dúddi stöku sinnum og tékkar á vatnslásnum, lagar biluð stormjárn og spyr húsráðendur hvort það þurfi kannski að mála eða veggfóðra eða herða einhverjar skrúfur í eldhúsinnréttingunni. Við húseigendur og leigusalar vitum að blöndunartæki og þröskuldar eru ekkert til friðs árum saman. Félagsbústaðir þurfa að hysja upp um sig og ráða einhvern í vesti úr Húsasmiðjunni yfir Gunnars Smára-skyrtu sem mætir í Írabakkann svona einu sinni á ári eða svo, bankar upp á til að skoða hvort gluggarnir séu kannski farnir að fúna eða hvort svalahurðin sé undin, og ef viðkomandi starfsmaður kemst ekki að gluggunum fyrir drasli þá á að segja leigjandanum að taka til hjá sér eða að finna sér ella annað búsetuúrræði. Í leiðinni má húsvörðurinn athuga hvort raunverulegur leigutaki búi örugglega í íbúðinni. Skilið þessu frá mér til Félagsbústaða!

Næsta mál: Megrunarlyfin sem halda uppi danska hagkerfinu. Nú bráðnar lýsið af fólki sem á pening, þessi lyf kosta víst rosa mikið svo fátæklingarnir fá að vera feitir og þurfa að þola gömlu fitufordómana áfram. Það sem ég velti fyrir mér í því samhengi er hvað fólk er alltaf jafn mikið til í að taka þátt í að vera tilraunadýr. Hvað hafa mörg lyf átt að vera töfralausnir og án aukaverkana en hafa síðan ekki reynst vera það? Eigum við að ræða fentanyl og thalidomide? Í gamla daga stráði fólk í sveitum líka DDT í kringum lúsuga flakkara sem gengu á milli bæja, það átti að vera alveg meinlaust.

Og eitt enn: Ég kann vel við spjallmenni. Ég hef soldið verið að spjalla við vélspjallara Arion-banka og ég næ eiginlega miklu betra sambandi við svona spjallvélar en þjónustufulltrúa. Svo er ég farin að spyrja ChatGPT að öllu mögulegu og fæ oft miklu vitrænni svör en hjá einhverju fólki í heitu pottunum. Egill Helgason spurði á vettvangi gömlu þursanna, fésbókinni, hver hefði selt fyrirtækjum og stofnunum þá hugmynd að snjallmenni geti leyst vanda fólks. Hann var varla búinn að ýta á send þegar Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði voru veitt John Hopfield og Geoffrey Hinton fyrir að hanna tölvukerfi sem geta lært af gögnum, ChatGPT segir mér að það sé kallað vélanám á íslensku. Dæmi um vélanám er til dæmis sjálfvirk flokkun á íslenskum textum, veðurspá eða að bæta skilning Arion-bankaspjallsins á kaldhæðni og gríni. Er kannski pæling að láta vélmenni taka yfir Kiljuna þegar Egill fer á eftirlaun?

P.s. Ég á engin megrunarlyf til að taka mynd af en læt fylgja mynd af sænskum styttum og bauk af Antabus sem mér áskotnaðist úr dánarbúi.

  

Kommentarer

  1. Omy ég er að segja þér það að þetta mál er svo mikið hneiksli og rosalega skrýtið hversu fjölmiðlar töluðu lítið um málið miðað við alvarleikann. Ekki bara það að að hafa verið í íbúðinni sem konan var skráð fyrir, löngu látin. Þá fékk hann bæði örkyrkjabætur hennar allan þann tíma, tók út lyfin sem hún var skráð á og einnig var hann sjálfur á nákvæmlega sömu lyfjum og hún. Sem eru jú mjög sterk og ávanabindandi. Já jiii ég verð að senda þér skilaboð.

    Kv frænka

    SvaraRadera

Skicka en kommentar

Populära inlägg i den här bloggen

Dánarstaður menningarmanns

Dr. Priemes Vej 1 árið 1947 Einu sinni var nítján ára stúlka sem hét Eleanor Christie. Hún bjó með móður sinni, ekkju eftir lögmann, í Bolfracks Cottage, nálægt Aberfeldy í miðjum skosku hálöndunum. Eleanor hafði gengið í einkaskóla á heimaslóðum og heimavistarskóla í York, hún var drátthög og áhugasöm um listir og málaði blómamyndir. Hún átti gamla tónelska frænku sem bjó í Wales, frænkan hét Helen Powell. Stundum kom vinur Helen í heimsókn til hennar og dvaldi hjá henni í Wales. Þetta var miðaldra músíkant sem ættaður var frá Íslandi, en hann hafði hátt í tvo áratugi búið í Edinborg og kompónerað tónlist og stundað píanóleik og kennslu. Eitt sinn þegar píanóleikarinn heimsótti gömlu vinkonu sína rak hann augun í mynd af stúlku sem honum þótti sjarmerandi og spurðist fyrir um hana. Helen sagði honum að þetta væri Eleanor frænka hennar sem byggi í Skotlandi. Manninum leist svo vel á stúlkuna að hann bað um að hann yrði kynntur fyrir mömmu hennar. Gömlu frænkunni fannst það sjálfsagt má...

Síðdegi flísaleggjarans

Það er eitthvað mjög áhugavert við að leggja flísar. Púsl með tilgang, verk sem er ekki beinlínis mjög auðvelt, en samt ekkert sérlega flókið og getur gengið býsna hratt. Það getur samt alveg tekið á taugarnar. Nú erum við að leggja lokahönd á flísagólf, annað kvöld mun ég fúga og í lok vikunnar verður glænýtt gólf á einu herbergi í kjallaranum. Á meðan ég lagði síðustu flísarnar áðan fór ég að hugsa um bók eftir höfund sem ég hef miklar mætur á. Það er maður sem skrifaði texta sem ég sogast oft inn í því hann er svo óskaplega tær og þægilegur, tilgerðarlaus og innihaldsríkur. Bókin sem ég hugsaði um heitir En kakelsättares eftermiddag eða Síðdegi flísalagningamanns og höfundurinn heitir Lars Gustafsson. Hann var meðal annars prófessor í Austin í Texas en  ættaður frá Västerås og gamall skólafélagi P. O. Enqvist. Lars Gustafsson dó fyrir rúmu ári síðan. Bókin um síðdegi flísaleggjarans er stutt (margar bækur LG eru stuttar og þéttar), hún kom út 1991 en ég las hana nokkrum árum...

Haustið og froskarnir

Það er næstum liðið ár síðan ég skrifaði síðast á þessa síðu. Á því ári hefur margt gerst. Ég ætla ekki að ræða það neitt frekar hér, datt bara í hug að gera það að haustheiti að endurlífga bloggsíðuna og því þurfti ég að prófa hvort ég kæmist enn hér inn. Það er ýmislegt á döfinni eins og gengur á haustin. Hvað mig varðar snýr það að bókum og fjölmiðlaverkefnum, en nýjasta trendið í örvandi efnum ku hins vegar vera að reykja froska. Það finnst mér vissulega undarlegt áhugamál.  Í Dagens Nyheter í dag er sagt frá því að fólk sem fékk ADHD-greiningu sem börn sé nú að fara í aðra greiningu sem losar það við ADHD-díagnósuna. Kannski er því batnað eða að það var ranggreint með ADHD. Þetta gerir fólk m.a. vegna þess að greiningin hamlar því, t.d. getur það aftrað því að það komist í lögreglunám. Með mér blundar umtalsverður áhugi á menningarbundnum sjúkdómsgreiningum (það kom til dæmis fram hér ), en í þetta skiptið er ég ekki sérstaklega að spá í ADHD-greiningar, heldur er ég að hugsa ...

Mauradráp á Sikiley

Í gær sat ég á sólbekk við sundlaug á strandhóteli á Sikiley og horfði á maura vinna í því að flytja líkið af stórri, dauðri bjöllu. Fyrst reyndu nokkrir maurar að lyfta undir framendann á henni, eins og þeir hefðu hugsað sér að rúlla henni, það gekk ekki og hópur dreif að, maurarnir röðuðu sér í kringum bjölluna og bjuggu sig undir að lyfta henni í sameiningu. Ég fylgdist með þessu í nokkrar mínútur en skyndilega stóð upp heimilisfaðir á næsta sólbekk (hann var með stóra silfurkeðju um hálsinn og nöfn barnanna sinna flúruð á sig) og þreif bjölluna upp af sundlaugarbakkanum og henti henni út í runna. Svo stappaði hann ofan á maurahópnum með flip-flop töfflunni sinni. Nú situr þessi maður á næsta borði við mig í morgunverðarsal hótelsins og borðar kökur. Það er ekkert ósætt brauð, nema örþunnar fransbrauðsneiðar, í boði hérna en kökuhlaðborðið er rosalegt. Allskonar tertur og flórsykurstráð sætabrauð í röðum á borðinu og nettar ítalskar konur raða í sig í kringum mig. Mauramorðinginn ...

Reynsluheimar lesenda

  Í gær hélt ég útgáfuboð í lokaðri bókabúð sem hafði orðið fyrir tölvuárás og verið skellt í lás. Það mættu samt margir og ég gat farið glöð að sofa í gærkvöldi. Í boðinu var ég spurð hvort ég væri ekki komin í frí. Það fannst mér skemmtilegt því að þó að mér finnist ég eiginlega ekki beinlínis vera í vinnu þá finnst mér ég aldrei eiga frí. Vegna þessarar spurningar ákvað ég samt að taka mér frí í dag frá því að skrifa útvarpsþátta- og sjónvarpsþáttahandrit, sem eru helstu verkefni mín þessa dagana. Ég get ekki afsakað mig með því að þykjast vera upptekin við kynningar á nýjum bókum mínum, þýðingu og smásagnasafni, ég er bókuð á tvo upplestra og alls ekki neitt annað. Þetta er aldeilis eitthvað annað en Eiríkur Örn Norðdahl sem þýtur umhverfis landið með posa og bókakassa og kynnir og selur nýju bókina sína og segist vera til í að mæta í viðtöl í næstu viku. Ég er auðvitað bara miklu latari en Eiríkur og svo er mér svakalega illa við að aka eftir þjóðvegum Íslands að vetrarlagi....

Enn í Åmål

Enn er ég í Åmål en skrapp reyndar til Karlstad um helgina til að fá hvíld frá fásinninu. Þangað er klukkutíma róleg lestarferð. Mér finnst hægar lestir betri en hraðar. Í Karlstad sá ég safnið með myndum eftir Lars Lerin , gamla steinbrú og fleira skemmtilegt. Í Víðsjá í dag fjallaði Steinunn Inga Óttarsdóttir mjög vel um Velkomin til Ameríku , eftir Lindu Boström Knausgård. Bókin, sem ég þýddi í vetur, er nýkomin út og ef einhvern langar að hlusta þá er hann hér þátturinn og umfjöllunin hefst á 36. mínútu .   Ljóðalesturinn í kúltúrhúsinu hjá okkur Louise Halvardsson gekk, held ég, ljómandi vel og hér er viðtal við mig sem birtist í héraðsfréttablaðinu . Það er pláss fyrir fólk í litlum bæ eins og Åmål. Úr gönguferð í kvöld. Lestargöng sem hafa ekki verið notuð í áratugi.

Moby Dick og flísarnar á gólfinu

Um daginn þóknaðist Nóbelsverðlaunahafanum Bob Dylan loks að senda frá sér ræðuna sem hann þurfti að halda til að fá milljónirnar. Ég hef ekki lesið þá ræðu eða heyrt, ég er ekki svo spennt, en hins vegar hef ég rekist á umfjöllun um hana og sýnist sitt hverjum, svona eins og búast má við. Ein þeirra sem skrifaði er Erika Hallhagen, blaðakona Svenska Dagbladet, greinin hennar hefur yfirskriftina; Ertu að grínast, Bob Dylan? Þar segir hún að ekki einu sinni meðvirkasta fólk geti varið þennan hálftímalanga samsetning sem hljómar eins og nemandi í elstu bekkjum grunnskólans hafi samið hann og svo finnst henni lítið til þess koma að Dylan vitni í Moby Dick , Ódysseifskviðu og Tíðindalaust á Vesturvígstöðvunum . Blaðakonunni Eriku finnst ræðan auk þess leiðinleg og tíðindalaus, þó að hún segist hafa getað flissað að einhverju. Hún segist hafa reynt að finna einhverja ljósa punkta í þessu hjá Dylan en að það hafi ekki tekist frekar en þegar söngvaskáldið lék í kvennærfataauglýsingu um árið...

Tranströmer og Dylan

Um daginn minntist ég hérna á rithöfundinn Lars Gustafsson og bókina hans um ógeðfellda flísaleggjarann. Þar sem ég á ekki þá bók þá fór ég að lesa endurminningabók eftir LG, bókin heitir Ett minnespalats eða Höll minninganna . Eftir Lars Gustafsson liggja þó nokkrar ljóðabækur og hann valdi líka ljóð í safnrit. Hann segir í endurminningabókinni að honum finnist sænsk ljóðskáld sem hafa náð einhvers konar frama eða vinsældum skiptast í tvo hópa. Annar hópurinn samanstendur af skáldjöfrum, þeir eru óþolandi belgingslegir og tala gjarna illa um verk kollega sinna í skáldastétt, svo tekur hann dæmi um slíka menn og segir sögu af einum sem kallaði ljóðlist annars skálds pissuskálaskáldskap. Svo er hin gerðin af skáldum, það eru menn sem yrkja auk þess að vinna við eitthvað annað, eru svona ljóðaföndrarar og líta á ljóðagerðina eins dund á borð við að sumir smíða líkön úr eldspýtum eða hnýta flugur. Slík skáld verða undrandi þegar þau fá viðurkenningu fyrir ljóðin sín. Þannig var  víst...

Listakona á Rolfsvej

   Elín Pjet. Bjarnason Sumir rithöfundar og bloggarar fá mörg símtöl, bréf og pósta frá lesendum sínum þar sem brugðist er við skrifunum með ýmsum hætti. Ég fæ lítið af slíkum viðbrögðum nema í formi þumla og einstaka skilaboða á samfélagsmiðlum, sem eru reyndar kærkomnir miðlar sem ég kann að meta. Ég á samt nokkur bréf og pósta frá lesendum, en það er ekki mikið að vöxtum. Kannski eru hinir skrifararnir bara að ljúga eða ýkja viðbrögðin við skrifum sínum til að vekja á sér athygli, það gæti svo sem alveg verið. En hvað sem þessu líður þá fékk ég um daginn, eftir að ég hafði skrifað um höfund lagsins sem sungið er við íslenska þjóðsönginn og eiginkonu hans og húsið sem Sveinbjörn dó í á Friðriksbergi, afar skemmtilega  pósta frá einum lesanda þessarar síðu. Lesandinn sagði mér frá mjög áhugaverðri og jafnframt býsna óþekktri íslenskri listakonu, Elínu Pjet. Bjarnason (1924-2009), sem bjó mestan hluta ævinnar og dó í Danmörku, seinni árin bjó hún einmitt á Friðriksbergi...

Vatnaleiðin og Álabókin

Það voru ekki margir á leið frá Stykkishólmi niður í Borgarfjörð í gær (ætli það megi ekki að segja niður í því samhengi?). Veðrið var fallegt, nokkrir hestar í vetrarbúningi átu hey og kindur vöppuðu á stöku stað fyrir utan bæi. Ég veit ekkert um landbúnað en klakabunkarnir yfir sumum túnum ímynda ég mér að geti valdið kali. Þegar ég fer um sveitir hugsa ég stundum með mér, þegar ég sé fallegt hús eða áhugavert bæjarstæði, ekki síst ef það er nálægt sjó og ekki hangandi utan í ógnvænlegu fjalli, að þarna gæti ég búið með nokkur hross og einhver smádýr, rekið flóamarkað í hlöðu og boðið einum og einum skiptinema til dvalar. Í fyrradag las ég einmitt frétt í einhverjum fjölmiðli um að Guðmundur í Brimi hefði keypt Þingvelli í Helgafellssveit, sjávarjörð í grennd við Stykkishólm. Mig minnir endilega að í fréttinni hafi staðið að hann eigi aðra jörð á Snæfellsnesi, hann er kannski að safna Snæfellsnesinu. Nú hvarflar skyndilega að mér að biðja Guðmund að selja mér skika í Helgafellssveit ...