Í umræðuþætti sem ég fann á vef sænska ríkisútvarpsins ræða bókmenntafræðingur, prófessor og nýdoktor í bókmenntum, könnun á kynjahlutföllum höfunda á leslistum í bókmenntafræðideildum fimm stærstu háskóla Svíþjóðar. Mikill meirihluti bóka sem lesnar eru í BA-námi í bókmenntafræði eru eftir karlmenn. Í Gautaborg er hlutfallið 78% karlkyns höfundar. Þau ræða fram og til baka hvers vegna tveir þriðju hlutar valinna bóka séu verk karlkyns höfunda og margt áhugavert kemur fram. Á 19. öld voru margir alþjóðlega þekktir sænskir höfundar konur, til dæmis var Fredrika Bremer (1801-1865) höfundur sem seldist í gríðarlegum upplögum í Bandaríkjunum og var kölluð Jane Austen Norðurlanda, en verk hennar sjást nú óvíða og önnur alþjóðleg bókmentastjarna Emilie Flygare-Carlén (1807-1892) er flestum gleymd, en hún var á sínum tíma notuð sem beita til að selja þýðingarrétt verka Augusts Strindbergs til forlaga utan Svíþjóðar. Þessar umræður minntu mig á ræðu sem ég hélt einu sinni, þar sem kona sem skrifuð var út út bókmenntasögunni er nefnd, hér er sú ræða á internetinu.
Annars er ég nú bara nokkuð svöl að hlusta á hressa tónlist með Inspector Spacetime sem ég uppgötvaði fyrir tilstilli RÚV.
Kommentarer
Skicka en kommentar