Um daginn hlustaði ég á útvarpsþátt þar sem var viðtal við mann sem hafði verið í sambandi við konu sem hann skilgreindi með narsissíska persónuleikaröskun. Röskunin birtist í ýmsu misskaðlegu atferli, en meðal annars átti konan gríðarlega erfitt með að gera eitthvað sem henni fannst ekki skemmtilegt. Til dæmis fór hún aldrei í þvottahúsið því henni þótti það alveg óbærilega leiðinlegt. Hún henti bara sokkunum sínum í ruslið eða óhreinatauskörfuna, ef þeir lentu þar þá þvoði hugsanlega einhver annar þá. Konan starfar sem læknir, sem gerði henni auðveldara að hegða sér svona en ef hún hefði verið láglaunakona, hún var með nógu góð laun til að kaupa sér eins mörg ný sokkapör og hana lysti. Þar sem hún nennti ekki að fá sér morgunmat heima þá dvaldi parið oft á hótelum um helgar og var bara almennt mikið að láta stjana við sig. Smám saman runnu tvær grímur á viðmælandann í útvarpsþættinum varðandi þetta ástarsamband. Hann nennti ekki að vera alltaf að gera eitthvað skemmtilegt og langaði stundum bara að hita sér frosna pítsu og horfa á eitthvað hálfleiðinlegt í sjónvarpinu í nokkra klukkutíma. Ofan á þetta bættust síðan ýmis einkennilegheit konunnar, gríðarleg sjálfhverfa, furðulegheit og dólgsháttur, flest mun óbærilegra en að nenna ekki að þvo sokka.
Þennan þátt og fleiri í þáttaröð þar sem síkópatar og narsissistar eru til umræðu, var ég að hugsa um áðan á meðan ég lagaði rennilás í gamalli lopapeysu. Lopapeysan, sem tengdamóðir mín prjónaði, hefur legið í körfu í stofunni í nokkrar vikur. Þegar ég ætlaði í hana um daginn kom í ljós að rennilásinn öðrum megin hafði losnað, saumurinn raknað upp. Mér finnst ekki gaman að sauma en læt mig hafa það ef nauðsyn krefur. Það er auðvitað ekkert afrek að þræða nál og sauma nokkur spor en miðað við hvað ég hataði handavinnutímana í skólanum framan af þá er allt sem ég sauma ákveðinn sigur og nú get ég farið út í kuldann á eftir í lopapeysunni. Guðrún, sem prjónaði peysuna og hundruð eða þúsundir annarra lopapeysa, var jarðsett í gær. Blessuð sé minning hennar.
Kommentarer
Skicka en kommentar