Fortsätt till huvudinnehåll

Inlägg

Bókablogg eða ekki ...

Loksins er vor í Dalslandi, hitinn í tveggja stafa tölu og sól. Stóru trén, sem beðið hafa norpandi eftir tækifæri til að fletta út á sér laufunum, grænka með hraði. Þetta er síðasti dagurinn minn í Åmål, a.m.k. í þessari törn, ég hafði aldrei komið hingað í byrjun þessa mánaðar og veit ekki hvort eða hvenær ég kem aftur. Ég hafði hugsað mér að skrifa bókablogg áður en ég færi héðan, um bók sem ég fann hérna frammi í hillu, en ég næ því ekki vegna þess að ég þarf að gera annað í dag og mig langar líka að vera dálítið úti í góða veðrinu. Bókin heitir Bland vulkaner och varma källor - Isländska strövtåg, hún kom út 1924 og er eftir Harry Blomberg. Höfundur segir í bókinni frá Íslandsferð sinni snemma á 3. áratug síðustu aldar og ég held að hann hafi verið dálítið naskur húmoristi. Harry Blomberg ræðir meðal annars þá þversögn á nokkrum síðum að á Íslandi skófli menn síld upp úr sjónum sem seld sé dýru verði til útlanda en að þeir sem slíti sér út við veiðar og fiskverkun séu bláfátæki...

Næstsíðasti dagurinn í Åmål

Líður að lokum dvalarinnar í menningarhúsinu bænum við Vänern. Búið að panta lestarferð suður á bóginn á fimmtudag og ég verð á Íslandi í næstu viku. Þar bíða beð sem þarf að róta í og safnhaugur sem þarf að snúa á hvolf. Veðrið hefur verið frekar ömurlegt allan mánuðinn hér í Svíþjóð; kalt, rigning, haglél, slydda og rok. Ekki hefur strandlíf og drykkja á sólpöllum tafið mig frá vinnu, enda hefur mér orðið mikið úr verki, ég hef bæði lesið og skrifað og líka andað djúpt og hugsað. Erla er ekki neitt sérlega iðin við bloggið, en ég bind vonir við að senn skrifi hún eitthvað. Ef þið vitið um íslensk blogg sem ég ætti að lesa þá má láta mig vita. Nokkur önnur blogg  sem ég les: Ráðlagður jazzkammtur Kaktusinn Bragi Ólafsson Fjallabaksleiðin

Enn í Åmål

Enn er ég í Åmål en skrapp reyndar til Karlstad um helgina til að fá hvíld frá fásinninu. Þangað er klukkutíma róleg lestarferð. Mér finnst hægar lestir betri en hraðar. Í Karlstad sá ég safnið með myndum eftir Lars Lerin , gamla steinbrú og fleira skemmtilegt. Í Víðsjá í dag fjallaði Steinunn Inga Óttarsdóttir mjög vel um Velkomin til Ameríku , eftir Lindu Boström Knausgård. Bókin, sem ég þýddi í vetur, er nýkomin út og ef einhvern langar að hlusta þá er hann hér þátturinn og umfjöllunin hefst á 36. mínútu .   Ljóðalesturinn í kúltúrhúsinu hjá okkur Louise Halvardsson gekk, held ég, ljómandi vel og hér er viðtal við mig sem birtist í héraðsfréttablaðinu . Það er pláss fyrir fólk í litlum bæ eins og Åmål. Úr gönguferð í kvöld. Lestargöng sem hafa ekki verið notuð í áratugi.

Blaðamenn og draumur

Það telst líklega til stórtíðinda að skrifandi Íslendingur dvelji í Åmål. Ég er búin að lofa að hitta tvo blaðamenn í dag. Annan frá héraðsfréttablaði og hinn frá bókmenntamiðli. Ég óttast að ég valdi fjölmiðlamönnunum vonbrigðum verandi jafn óspes og ég er. Ég ætti kannski að temja mér að ganga með sérkennileg höfuðföt, klæða mig í óvenjuleg föt og reykja jafnvel pípu. Það hlyti að gleðja fólk sem gerir sér ferð til að ræða við mig ef ég gengi með hatt eins og Selma Lagerlöf. Í nótt dreymdi mig að ég væri stödd á tónleikum með Ljótu hálfvitunum í Hafnarfjarðarbíói. Uppstillingin á sviðinu var eins og um sinfóníutónleika væri að ræða og þarna voru margar fiðlur, en svo var þarna líka banjó með tveimur plaststrengjum og ég átti að vera tilbúin að spila á það ef með þyrfti, ég varð að sitja fremst til að geta stokkið fyrirvaralaust upp á svið. Bragi Valdimar Skúlason var forsprakki Ljótu hálfvitanna en einnig átti leynigestur að koma fram. Þegar Bragi kynnti fyrsta lagið sem MASH-lagið...

Djamm og djobb í Åmål og Gautaborg

Nú er ég aftur sest við skrifborðið í bókmenntahúsinu í Åmål, sama húsi og rithöfundurinn, fréttaritarinn og hænsnabóndinn Ida Bäckmann bjó í sem barn. Ég gleymdi reyndar að minnast á það í bókablogginu um Idu að ég væri með vinnuaðstöðu á æskuheimili hennar. Páskunum var eytt í hinni indælu Gautaborg þar sem við sáum meðal annars fallega sýningu á verkum Tove Jansson á listasafni. Mig langar svolítið að þýða Sommarboken eftir Tove Jansson, kannski finn ég einhvern flöt á því fljótlega. Mér finnst að hún ætti að vera til á íslensku. Öll söluvaran með múmínálfamyndum er svolítið að kæfa hin raunverulegu verk Tove. Í Gautaborg sá ég líka rottu skjótast inn í McDonalds-kassa í Brunnsparken og sitthvað fleira áhugavert. Lestarferðin til Åmål á páskadag tók hins vegar fimm tíma í stað eins og hálfs vegna járnbrautarslyss, og var reyndar um tíma rútuferð. Á öðrum degi páska var ekki mikið stuð í Åmål en það var samt hægt að fá sér bakaða kartöflu með skagenhræru og hlusta á dúndrandi t...

Ævintýrasirkusinn

Auðvitað er ég blinduð af eigin fordómum. Á meðan ég gekk um Åmål síðdegis í dag, eftir langan vinnudag við skrifborðið, hugsaði ég með mér að hér í þessum rólega bæ gerist örugglega aldrei nein ævintýri. Mér fannst þessi staður hljóta að vera merktur einhverjum ægilega tragískum hversdagsleika. En það var auðvitað eins og við manninn mælt; ég gekk inn í bók eftir Enid Blyton. Þegar ég kom rétt út fyrir miðbæinn, niður að vatninu, kom í ljós að Cirkus Brazil Jack er mættur í þorpið. Bæjarbúar þustu að og biðröð hafði myndast við miðasöluvagninn. Auðvitað gat forvitna konan ekki stillt sig um að læðast um svæðið og smella af nokkrum myndum. Ég batt að sjálfsögðu vonir við að sjá skeggjuðu konuna, fíl sem gengur á tveimur fótum, apa sem skilur mannamál og léttfulla spákonu með stóra eyrnalokka, skuplu og kristalskúlu, en þau voru örugglega öll inni í vögnunum að leggja sig. Sömuleiðis konan sem getur brotið sig saman og troðið sér ofan í skókassa og síamstvíburarnir. Hins vegar sá ég þr...

Pizza-salat, strönd, bækur og hús

Nú er ég búin að taka Åmål betur út en um daginn, það tekur ekki langan tíma að skoða miðbæinn hérna. Ég fór á pítsustað í gærkvöldi og fékk mér til gleði hinn sænska rétt pizzasalat á undan pítsunni. Svo fór ég í göngutúr niður á litla strönd sem er í sjö mínútna göngufjarlægð. Þar var engin manneskja, bara beyglað hjól. Ég les ekki eins mikið og ég gerði fyrir einhverjum árum. Einu sinni át ég bækur en nú narta ég frekar í þær. En ég er búin að vera að lesa ýmislegt þessa viku sem ég hef verið í Svíþjóð, bæði gott og minna gott, áhugavert og minna áhugavert. Í dag skrifaði ég blogg um eina af bókunum, bókin sjálf er ekki endilega neitt frábær en ég mun sennilega ekki gleyma konunni sem hún fjallar um í bráð. Hér er bloggið . Það eru mörg falleg hús í Åmål. Líka margar kirkjur miðað við hvað bærinn er lítill. Ég hef rekist á Baptistakirkju, missionskirkju (þar eru AA-fundir auglýstir í auglýsingakassa fyrir utan) Hjálpræðisher, venjulega sænska kirkju með tilheyrandi kirkju...