Í Politiken er greinarflokkur þar sem starfsfólk safna er spurt um áhugaverða gripi á söfnunum sínum. Í dag var ég að lesa um græju sem var víst til á langflestum dönskum heimilum á fyrri hluta síðustu aldar og var að sögn safnvarðar á dönsku safni notuð sem getnaðarvörn í áratugi. Tækið var notað til að skola út sæði eftir samfarir, en einnig til skolunar eftir fæðingar og ólögleg þungunarrof. Ílátið var fyllt af vatni og hengt hátt upp og svo var spúlað út með hjálp þrýstings og vatns. Þetta tæki mun hafa verið algengt frá 1920 til 1950, en var einnig töluvert notað eftir það því pillan kom jú ekki á markaðinn fyrr en á sjöunda áratugnum. Ýmist var notað hreint vatn eða að út í það var blandað ediki eða sítrónusafa, en það mun ekki hafa verið hollt fyrir líkamann, sýrustigið gat farið í tómt rugl. Svo er þetta ekki sérlega góð getnaðarvörn heldur, en sennilega betra en ekki neitt.
Safnvörðurinn sem er til viðtals í Politiken segir að þessi græja hafi verið gríðarlega mikið notuð á sínum tíma en spyrji fólk lækni eða annað heilbrigðisstarfsfólk nú til dags er ólíklegt að þau kannist við þetta, safngestir eiga víst líka erfitt með að giska á til hvers þetta var notað og í dönskum antíkbúðum hangir þetta fjölmúlavíl oft með gömlu eldhúsdóti. Safnvörðurinn segir að gamlar konur sem skoða safnið kannist hins vegar mjög margar við þetta og hafi orð á því. Þegar ég las þessa grein mundi ég eftir að hafa séð svona emaleraðan bauk með slöngu einhvers staðar, ég man ekki hvar, og ákvað að leita á sarpur.is. Og viti menn, ég fann nokkur svona áhöld, meira að segja eitt sem er alveg nákvæmlega eins og það sem mynd er af í Politiken, nema að þar heitir þetta undantekningarlaust stólpípa.
Ditt inlägg var en fröjd att läsa - tack för att du gjorde det både informativt och engagerande.
SvaraRadera