Fortsätt till huvudinnehåll

Kona sem dó af völdum kakkalakkapúlvers

Undanfarnar vikur hafa Halldór Guðmundsson og Þorgerður E Sigurðardóttir verið með mjög áhugaverða útvarpsþætti á RÚV um Íslendinga í Kaupmannahöfn. Síðasti þátturinn verður á dagskrá næsta laugardag og ég hlakka til að hlusta á hann. Í þáttunum, sem heita Skáld og skrælingjar, hefur Halldór meðal annars minnst á íslenska karla sem sátu hver yfir öðrum á knæpum í grennd við Kóngsins nýjatorg og uppnefndu Dani, en líka hefur verið minnst á nokkrar konur.

Ég hef sjálf óseðjandi áhuga á íslenskum konum sem voru í Kaupmannahöfn á síðustu öld og er einmitt núna stödd í borginni og búin að lesa ýmis skjöl á Ríkisskjalasafni Dana og fletta upp í Borgarskjalasafninu. Ég hef ekki fundið nákvæmlega það sem ég er beinlínis að leita að og sem tengist íslenskri konu sem bjó í Kaupmannahöfn mikinn meirihluta ævinnar (hér eru útvarpsþættirnir um hana), en ég hlýt samt að finna þetta á endanum, nú bíða mín tvær útkrotaðar bækur í Svarta demantinum.

Ekki er ég sagnfræðingur og ekki geng ég mjög skipulega til verka, en ég yrði kannski ágætur einkaspæjari því ég er forvitin og þolinmóð þegar ég hef áhuga á einhverju og svo er ég mjög góð í að lesa hrafnaspark á gömlum dánarvottorðum og í lögregluskýrslum og dómabókum. Á fyrri hluta 20. aldar voru fleiri íslenskar konur í Kaupmannahöfn en karlar. Þessar konur hafa fæstar farið á bari, margir barir voru líka bannaðir konum. Þær unnu fyrir sér sem kaffijómfrúr, saumakonur, vændiskonur, vinnukonur, skúringakonur, húsmæður, bústýrur, straukonur, ljósmæður, hjúkrunararkonur, búðarkonur og þær ráku gistihús og voru listakonur og alla vega ein var bókmenntaþýðandi. Nafn einnar íslenskrar konu í Kaupmannahöfn rakst ég á þegar ég var að rekja ferðir Guðnýjar Eyjólfsdóttur þegar ég vann að útvarpsþáttunum um hana. Það sem vakti athygli mína varðandi þá konu var að í skjalasafni Kaupmannahafnarborgar er nóta þar sem segir að hún hafi látist árið 1939 vegna eitrunar af völdum kakerlakpulver. Konan hét Laufey Árný Ólafsdóttir og var fædd í janúar 1905. Í gær rakst ég aftur á nafn þessarar konu og ákvað að reyna að finna út hvað hún hefði verið að gera í Kaupmannahöfn. Mér tókst að rekja ferðir hennar um borgina frá árinu 1920, þegar hún var 15 ára. Hún starfaði á gistihúsum og veitingastöðum og bjó víða um borgina og í Humlebæk á árunum 1920-1923. Árið 1922 var hún buffetnemi og bjó í Købmagergade og hafði þá logið sig tveimur árum eldri en hún var, væntanlega til að komast í námið (upploginn aldur íslenskra kvenna í Kaupmannahöfn er sérstakt efni, ég veit um eina sem laug sig áratug yngri en hún var því hún átti mun yngri mann, og svo laug hún líka upp á sig fínum starfstitli, en það er annað söguskott). Laufey Árný átti áreiðanlega áhugaverða ævi, sú saga er sennilega öllum hulin og verður tæpast sögð, en þegar hún dó á Bispebjerg Hospital, 4. maí árið 1939, er hún titluð garderobedame og hún deyr, sem fyrr segir, af völdum kakkalakkaeiturs, sem ég held að sé bórsýra. Læknir skrifar í dánarvottorðið að um sjálfsvíg sé að ræða, konan hafi fundist rænulaus og köld og dáið klukkustund eftir að hún var flutt á spítala. Á dánarvottorðinu stendur líka að lögreglan sjái enga þörf á rannsókn og að óhætt sé að jarða líkið. Á dánarstundu bjó Laufey Árný í nýlegri blokk í Valby og var jarðsett frá Jesúskirkjunni. Dánartilkynning birtist í íslenskum blöðum nokkrum dögum eftir andlátið.

Eftir að hafa flett upp í kirkjubók og skoðað dánarvottorð Laufeyjar Árnýjar, sem stakk af til Kaupmannahafnar fimmtán ára gömul, fór ég auðvitað í Íslendingabók. Þar er dánardagur hennar ekki skráður en það kemur fram að hún hafi búið í Reykjavík 1910. Foreldrar hennar, Sæmundur Ólafur Guðmundsson (1871-1961) og Guðríður Árnadóttir (1881-1940), hafa líklega aldrei búið saman, Guðríður er skráð vinnukona í Kaldaðarnessókn 1901 og lausakona á Skólavörðustíg 1920 og á Bergþórugötu 1930. Sæmundur Ólafur er einhvers staðar annars staðar.

Amma Laufeyjar Árnýjar hét Rannveig Jóelsdóttir. Það þarf ekki annað en að slá nafnið hennar inn á timarit.is eða einhverja leitarvél til að finna út að hún var dæmd fyrir dulsmál á sama tíma og Skúli Thoroddsen stóð í frægum málaferlum, það var árið 1893. Í dómnum yfir Rannveigu kemur fram að hún hafi fyrirfarið nýfæddu barni vegna hræðslu við mann sem hún átti tvö börn með fyrir, nú var hún ólétt eftir annan (sennilega húsbóndann þar sem hún var vinnukona) og óttaðist hinn barnsföðurinn. Hún henti barnslíkinu í Ölfusá en það rak á land og hún var dæmd til sex ára betrunarhúsvistar.  Þetta stendur um hana í Íslendingabók.




Ekki hef ég kynnt mér hvort og þá hvar Rannveig  sat inni en manntölin og Íslendingabók gerðu mér fært að rekja ferðir hennar norður í land og Rannveig bjó síðast á Raufarhöfn með manni sem hún hefur hugsanlega kynnst í fangelsi. Sá maður hét Sigurjón Einarsson (1868-1938) og hann hafði fengið tíu ára dóm fyrir að eignast barn með systur sinni, Sólborgu, og nú kviknar væntanlega á perunni hjá einhverjum því margt hefur verið rætt og ritað um það draugalega mál þar sem Einar Benediktsson kom mjög við sögu og sem Matthías Johannessen, Thor Vilhjálmsson, Guðjón Friðriksson og margir blaðamenn hafa fjallað um, málið dúkkar reglulega upp og um það eru margar kenningar. Hér eru nokkrar krækjur um Sólborgarmálið:

https://timarit.is/page/1924555#page/n23/mode/2up

https://www.visir.is/g/20151786496d/jon-ottar-raedur-gatuna-um-solborgarmalid

https://www.dv.is/fokus/2022/11/26/sagan-af-solborgu-og-sigurjoni-sifjaspellsmalid-sem-markadi-skaldid-til-lifstidar/

Ekki hef ég fundið neina mynd af Laufeyju Árnýju Ólafsdóttur, því miður. Ég held nú áfram að reyna að finna það sem ég leita að, en takist það ekki þá finn ég alla vega alltaf einhverjar áhugaverðar sögur um íslenskar konur, ég gæti sagt ykkur nokkrar verulega magnaðar og geri það kannski síðar.

Kommentarer

Skicka en kommentar

Populära inlägg i den här bloggen

Ljótar ljósmyndir

Stolin mynd af bæjarleikhúsinu  Í krummaskuðinu Krummaborg er gamalt leikhús sem á sér langa sögu . Það stendur við götu sem heitir Horní og er um 200 metra frá aðaltorginu þar sem ég er stödd núna. Í leikhúsinu er kaffihús/bar, eina slíka lókalið ég hef komið inn á í Tékklandi þar sem ekki má reykja. Anddyri leikhússins minnir mig pínulítið á gamla Nýja bíó eða jafnvel Hafnarfjarðarbíó (sem var eitt fallegasta bíó Íslands - en auðvitað var það eyðilagt), það er einhver svoleiðis stemning þarna. Kaffihúsið á neðstu hæð er skemmtilega gamaldags og ekkert of fínt, mismunandi ljósakrónur og lampar og þjónustustúlkan var hressileg. Mér leið samt dálítið eins og á kaffistofu sagnfræðinga við Háskóla Íslands þarna inni í gærkvöldi. Á svæðinu voru nefnilega tólf karlar og ein kona (ég). Já og skömmu síðar bættist þrettándi karlinn í hópinn. Úr anddyrinu Hann hefur komið sér upp listamannslegu yfirbragði dávaldurinn og stjörnu- spekingurinn frá Budejovice. Kannski...

Skrópasýki á bænadegi Dana

Mig langar smá að skrópa í vinnunni í dag og fara upp í sumarhúsið mitt (þangað er 15 mínútna akstur) og skrúfa frá krana og athuga hvort gamla þvottavélin virkar. Það sprungu nefnilega leiðslur og blöndunartæki í vetur (og vatn flæddi út á gólf) en nú er búið að laga pípurnar og aftur komið rennandi vatn í kranana. Það er samt ýmislegt sem þarf að laga, bæta og mála í sumarhúsinu sem telst líklega kofi miðað við íslenska sumarbústaði almennt. Mér skilst samt að svona A-hús séu mikið í tísku hjá retró-áhugafólki úti í heimi, ég fékk meira að segja póst í fyrra frá manni í útlöndum sem sá mynd af sumarhúsinu mínu á Instagram og bað mig að gefa sér upp málin á því, hann var að fara að byggja sér svona hús og var að velta fyrir sér hvað hann ætti að hafa stóran gólfflöt. Þetta þýðir sennilega að A-hús komast í tísku á Íslandi eftir tuttugu ár. En þá verður kannski búið að rífa þau flest. Svo þarf að hella úr safnhaugstunnunni og stinga upp beð og sá fræjum, já og stinga upp fullt af furup...

Í Bæheimi

Horft yfir borgina fyrsta daginn Þórunn Hrefna biður mig að skrifa eitthvað um svaðilfarir mínar í Tékkó. Það er auðvitað gleðilegt að fólk vilji heyra af mögulegum svaðilförum mínum og ég er reyndar búin að vera í heila viku hér í Český Krumlov í Tékklandi án þess að skrifa neitt  á þessa bloggsíðu sem ég ákvað eiginlega að ætti að vera upphafið að nýju bloggi, og það ekki síst ferðabloggi. Tími til kominn skulum við segja. Hins vegar var alltaf ætlunin að vinna hér í þessum mannfáa miðaldabæ og það hef ég svo sannarlega gert undanfarna viku. Ég hef þýtt margar síður og lesið heilar þrjár bækur. En ég hef líka borðað mikið af ódýrum og góðum mat og drukkið vín frá Moravíu og tékkneskan bjór.

Gömul launungamál

Ég er stödd í Kaupmannahöfn og undir lok liðinnar viku var ég að fletta skrám frá Mæðrahjálp borgarinnar frá því á öðrum áratug síðustu aldar. Þar rakst ég á örfá nöfn íslenskra kvenna, og reyndar karla líka, en aðeins tvö sem ég lagði á minnið. Mæðrahjálpin hefur í rúm hundrað ár rekið hjálparstarf í Kaupmannahöfn. Áður störfuðu þar tvö félagasamtök sem aðstoðuðu einstæðar, barnshafandi konur og konur sem höfðu átt börn utan hjónabands, sem var síðan steypt saman í Mæðrahjálpina. Hjálpin fólst meðal annars í að hafa uppi á fjarverandi feðrum,  koma börnum til ættleiðingar og að aðstoða við framfærslu. Nöfnin sem vöktu athygli mína voru Elín Elísabet Jónsdóttir og Jóhann Jónsson. Seint á föstudagskvöldið sendi ég Kristínu Svövu Tómasdóttur skilaboð, mig rámaði í þessa færslu sem hún skrifaði á sínum tíma um bókina Angantý. Ég sagði Kristínu að ég hefði ekki lesið bókina en að ég hefði hlustað á útvarpsþætti um Elínu, sem Sóley Stefánsdóttir, afkomandi hennar (sem einnig var nágrann...

Launbarnið - framhald

Í gær skrifaði ég að ég hefði fundið sönnun þess í skrá Mæðrahjálpar Kaupmannahafnar að Elín Elísabet Jónsdóttir hefði eignast son með Jóhanni Jónssyni. Guðmundur Magnússon, sagnfræðingur, sem er að safna efni í bók um Jóhann, er sá sem hafði samband við mig um hvort ég hefði rekist á nafn Elínar og það var svo skemmtileg tilviljun að það hafði ég gert alveg óvænt. Eftir að hafa verið í sambandi við Guðmund og hann sent mér eitt heimilisfang og ég síðan fundið eitthvað um ferðir Elínar í Kaupmannahöfn sagði ég honum að skrár yfir fæðingar á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn væru á vef danska Ríkisskjalasafnsins en að það væri þolinmæðisverk að stauta sig í gegnum þær. Eftir að ég sendi honum póstinn datt mér samt í hug að taka smástund í að lesa nöfn fæðandi kvenna í Protokol over ugifte fødende (hemmeligfødende) á Ríkisspítalanum. Árið sem nafn Elínar er í bók Mæðrahjálparinn er 1917 svo ég gerði ráð fyrir að barnið hefði fæðst snemma það ár, hún mun hafa komið til Danmerkur 1916. Ég ...

Heima

Flugleiðavélin var full af fólki en við könnuðumst ekki við neinn innanborðs. Ég var búin að hlakka til að hlusta á seinni hlutann af Egils sögum á hljóðbók í vélinni en varð fyrir vonbrigðum. Á útleið fyrir mánuði hlustaði ég á Pál Valsson og Egil lesa til skiptis úr bókinni en í gær var búið að skipta út hljóðbókunum í afþreyingarkerfinu og ég gat þess vegna ekki hlustað á síðasta þriðjung Egils sagna . Í staðinn horfði ég smávegis á Ligeglad og svo mynd um íbúa á Ströndum. Mér finnst merkilega lítið hafa gerst hjá gróðrinum í Reykjavík á heilum mánuði. Það mætti halda að ég hafi verið viku í burtu en ekki mánuð. Undantekningin er heggurinn fyrir framan hús, hann er alltaf fljótur til. Það væri nú skemmtilegt ef hann færi að blómstra. Þetta er heggurinn

Reynsluheimar lesenda

  Í gær hélt ég útgáfuboð í lokaðri bókabúð sem hafði orðið fyrir tölvuárás og verið skellt í lás. Það mættu samt margir og ég gat farið glöð að sofa í gærkvöldi. Í boðinu var ég spurð hvort ég væri ekki komin í frí. Það fannst mér skemmtilegt því að þó að mér finnist ég eiginlega ekki beinlínis vera í vinnu þá finnst mér ég aldrei eiga frí. Vegna þessarar spurningar ákvað ég samt að taka mér frí í dag frá því að skrifa útvarpsþátta- og sjónvarpsþáttahandrit, sem eru helstu verkefni mín þessa dagana. Ég get ekki afsakað mig með því að þykjast vera upptekin við kynningar á nýjum bókum mínum, þýðingu og smásagnasafni, ég er bókuð á tvo upplestra og alls ekki neitt annað. Þetta er aldeilis eitthvað annað en Eiríkur Örn Norðdahl sem þýtur umhverfis landið með posa og bókakassa og kynnir og selur nýju bókina sína og segist vera til í að mæta í viðtöl í næstu viku. Ég er auðvitað bara miklu latari en Eiríkur og svo er mér svakalega illa við að aka eftir þjóðvegum Íslands að vetrarlagi....

Karladýrkun

Ein birtingarmynd karlasamfélagsins æpti á mig úr hillu með óskálduðum bókum sem ég gekk framhjá á Kastrupflugvelli í gær (það stendur non-fiction fyrir ofan hilluna). Þarna er nú aldeilis enginn skortur á bókum um og eftir karlmenn þar sem kápumyndin er af aðalkarlinum. Svo lúrir þarna Britney Spears innan um karlana, en hún er ber að ofan. Og svipuð sjón er auðvitað svo algeng að fæst fólk sér nokkuð athugavert við þetta. Þegar athygli er vakin á þessu er gjarna sagt að þetta sé alveg örugglega bara einhver tilviljun.   

Moby Dick og flísarnar á gólfinu

Um daginn þóknaðist Nóbelsverðlaunahafanum Bob Dylan loks að senda frá sér ræðuna sem hann þurfti að halda til að fá milljónirnar. Ég hef ekki lesið þá ræðu eða heyrt, ég er ekki svo spennt, en hins vegar hef ég rekist á umfjöllun um hana og sýnist sitt hverjum, svona eins og búast má við. Ein þeirra sem skrifaði er Erika Hallhagen, blaðakona Svenska Dagbladet, greinin hennar hefur yfirskriftina; Ertu að grínast, Bob Dylan? Þar segir hún að ekki einu sinni meðvirkasta fólk geti varið þennan hálftímalanga samsetning sem hljómar eins og nemandi í elstu bekkjum grunnskólans hafi samið hann og svo finnst henni lítið til þess koma að Dylan vitni í Moby Dick , Ódysseifskviðu og Tíðindalaust á Vesturvígstöðvunum . Blaðakonunni Eriku finnst ræðan auk þess leiðinleg og tíðindalaus, þó að hún segist hafa getað flissað að einhverju. Hún segist hafa reynt að finna einhverja ljósa punkta í þessu hjá Dylan en að það hafi ekki tekist frekar en þegar söngvaskáldið lék í kvennærfataauglýsingu um árið...

Listakona á Rolfsvej

   Elín Pjet. Bjarnason Sumir rithöfundar og bloggarar fá mörg símtöl, bréf og pósta frá lesendum sínum þar sem brugðist er við skrifunum með ýmsum hætti. Ég fæ lítið af slíkum viðbrögðum nema í formi þumla og einstaka skilaboða á samfélagsmiðlum, sem eru reyndar kærkomnir miðlar sem ég kann að meta. Ég á samt nokkur bréf og pósta frá lesendum, en það er ekki mikið að vöxtum. Kannski eru hinir skrifararnir bara að ljúga eða ýkja viðbrögðin við skrifum sínum til að vekja á sér athygli, það gæti svo sem alveg verið. En hvað sem þessu líður þá fékk ég um daginn, eftir að ég hafði skrifað um höfund lagsins sem sungið er við íslenska þjóðsönginn og eiginkonu hans og húsið sem Sveinbjörn dó í á Friðriksbergi, afar skemmtilega  pósta frá einum lesanda þessarar síðu. Lesandinn sagði mér frá mjög áhugaverðri og jafnframt býsna óþekktri íslenskri listakonu, Elínu Pjet. Bjarnason (1924-2009), sem bjó mestan hluta ævinnar og dó í Danmörku, seinni árin bjó hún einmitt á Friðriksbergi...