Iris Murdoch með kisunni sinni Fyrir mörgum árum, í viðtali um einhverja bók eftir mig, spurði fjölmiðlamaður mig eftirfarandi spurningar: „Ertu að reyna að vera fyndin?“ Ég hef ekki hugmynd um hverju ég svaraði og reyndar var ég löngu búin að gleyma því að ég hefði verið spurð þegar Snæbjörn minnti mig á það einhvern tíma í fyrra, honum fannst þetta fyndin spurning. Í gærkvöldi horfði ég á viðtal við Babben Larsson, sem er sænsk leikkona, grínisti og uppistandskennari við Dramatiska Institutet í Stokkhólmi. Þar var hún spurð hvað væri fyndið og í stuttu máli sagði hún eitthvað á þá leið að oft þætti fólki það fyndið þegar varpað væri ljósi á aðstæður sem það gæti séð sjálft sig í eða kannaðist við, en á einhvern óvæntan hátt eða í óvæntu samhengi. Gagnrýnandinn John Self skrifaði grein í fyrra, sem birtist á vef BBC, þar sem hann hélt því fram að skáldskapur sem fengi okkur til að hlæja væri í raun oft sá besti og djúpstæðasti. Self var þarna að gagnrýna Booker-verðlaunalistann ...